Gæðingalist á föstudag
Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði unnu gæðingalistina í Meistaradeildinni í fyrra. Mynd: Carolin Giese
Það styttist í næstu grein í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum en á föstudaginn verður keppt í gæðingalist. Líkt og áður fer keppni fram í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli og hefst keppni kl. 19:00.
TopReiter býður gestum frítt í stúkuna og verður hlaðborðið á sínum stað en þeir sem panta fyrirfram tryggja sér frátekið sæti í stúkunni. HÉR er hægt að panta á hlaðborðið.
Það var Ásmundur Ernir Snorrason sem vann greinina í fyrra á Hlökk frá Strandarhöfði en Ásmundur er efstur að stigum í einstaklingskeppninni og yrðu það dýrmæt 12 stig í pottinn ef hann endurtæki leikinni.
Sýnt verður beint frá mótinu á EiðfaxaTV.
Meistaradeildin er ekki það eina sem er á dagskrá í þessari viku en á miðvikudaginn verður bein útsending frá Blue Lagoon mótaröðinni, á fimmtudaginn frá Samskipadeildinni, áhugamannadeild Spretts, og á sunnudaginn verður sýnt frá Meistaradeild Líflands og æskunnar.
Gæðingalist á föstudag
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum
Katla Sif og lið Fornusanda á toppnum í 1.deild Hringdu