Hófur kominn í Staubli safnið

  • 29. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Einn álitlegasti fjórgangshestur í heimi

Fyrir nokkru spjölluðum við í Hestum og hestamönnum við unga svissneska stúlku, Möru Daniellu Staubli, sem var að vinna við tamningar hér á landi, á Syðri-Gegnishólum. Fjölskylda hennar hefur keypt nokkur úrvalshross og flutt til Sviss, og má segja að þau safni að sér fyrstu verðlauna stóðhestum og hryssum. Þar á meðal eru Samber frá Ásbrú, undan Gauta frá Reykjavík og Sömbu frá Miðsitju, Frigg frá Miðsitju, Keilisdóttir frá Miðsitju, og Gerða frá Gerðum, Baldursdóttir frá Bakka.

Nú hefur bæst í hópinn stóðhesturinn Hófur frá Varmalæk, sem er undan Hróðri frá Refsstöðum og Kengálu frá Varmalæk. Hófur er spennandi stóðhestur og mjög álitlegur keppnishestur í fjórgangsgreinum. Af mörgum talinn einn sá álitlegasti í heimi á þeim vængnum. Hann er með 9.0 fyrir tölt, brokk, vilja, fegurð og hægt tölt. Hann er með 9,5 fyrir stökk og hægt stökk. Hófur er farinn utan og Mara Daniela stefnir vafalítið á að komast í svissneska landsliðið fyrir HM2011 í Austurríki. Spennandi að sjá hvort sá draumur rætist.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link