Fáksmenn heiðruðu ræktendur

  • 16. janúar 2012
  • Fréttir
Fáksmenn heiðruðu ræktendur

Fáksmenn fjölmenntu á þrettándagleði Limsfélagsins og hrossaræktardeildar Fáks sem  haldin var 7. janúar sl. í félagsheimilinu í Víðidal.

Þá veitti Ræktunardeildin þeim félagsmönnum viðurkenningu sem ræktuðu hæst dæmdu kynbótahrossin í hverjum aldursflokki á nýliðnu ári:

Hryssur:

  • 4 vetra – Ríma frá Auðsholtshjáleigu, ræktendur Gunnar Arnarson og Kristbjörg Eyvindsdóttir
  • 5 vetra – Oktavía frá Feti, ræktandi Brynjar Vilmundarson
  • 6 vetra – María frá Feti, ræktandi Brynjar Vilmundarson
  • 7 vetra – Glæða frá Þjóðólfshaga, ræktendur Sævar Haraldsson og Sigurður Sigurðarson

Stóðhestar:

  • 4 vetra – Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu, ræktandi Þórdís Erla Gunnarsdóttir
  • 5 vetra – Þrumufleygur frá Álfhólum, ræktandi Rósa Valdimarsdóttir
  • 6 vetra – Konsert frá Korpu, ræktandi Ragnar Hilmarsson
  • 7 vetra – Héðinn frá Feti, ræktandi Brynjar Vilmundarson

Limsfélagið er félagsskapur rúmlega 70 hestamanna sem stofnað var í kringum eignarhald stóðhestsins Glym frá Leiðólfsstöðum. Glymur var sýndur í fyrra og hlaut þar aðaleinkunnina 8,24 og er nú hæst dæmdi stóðhestur undan Álfi frá Selfossi. Stóðhesturinn efnilegi heiðraði gesti með nærveru sinni eins og meðfylgjandi mynd sýnir.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link