Meistari meistaranna
Sprettur bíður til veislu í Samskipahöllinni föstudaginn 15 apríl 2016 þegar ný keppni sem hlotið hefur heitir Meistari meistaranna 2016 fer fram.
Um er að ræða keppni í tölti, slaktaumatölti, fimmgangi og fjórgangi.
Einungis verða riðin úrslit – allt á einu kvöldi. Sjö keppendur í hverri grein.
Þátttökurétt öðlast sigurvegarar hverrar greinar í eftirtöldum mótaröðum 2016– raðað í stafrósröð:
Áhugamannadeildin
Húnverska liðakeppnin
KB Mótaröðin
KEA mótaröðin
KS deildin
Meistaradeildin
Uppsveitardeildin
Nú er um að gera að taka daginn frá strax enda hægt að láta sér hlakka að bera augum sigurvegara þessara frábæru mótaraða.
Vegleg verðlaun verða í boði fyrir Meistara meistaranna í hverri grein.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH