Áverkar í munni hrossa og tækifæri til úrbóta

  • 6. janúar 2013
  • Fréttir
Áverkar í munni hrossa og tækifæri til úrbóta

„Mikilvægast er að greina orsakir áverkana eins vel og auðið er því þar liggja tækifærin til úrbóta. Til að sjá þessi tækifæri gæti þurft að breyta viðhorfum en í öllu falli er nauðsynlegt að byggja á bestu fáanlegu þekkingu á hverjum tíma,“ segir Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Mast í grein sinni sem birtist í jólablaði Eiðfaxa.

 
Þar fjallar hún ítarlega um niðurstöður heilbrigðisskoðana keppnis- og sýningarhrossa samkvæmt fyrirkomulaginu „Klár í keppni“ , greinir hún frá algengustu áverkum, orsökum þeirra og leggur til lausnir til úrbóta.
 
„Umfram allt þarf að draga úr hinum stöðuga þrýstingi og varast að draga mélin upp á tennur hestsins. Þar skiptir miklu máli að mélin séu ekki of löng eins og lengi hefur tíðkast hér á landi og að múlar séu ekki of hertir og/eða valdi ekki stöðugum þrýstingi á sama svæði. Segja má að notkun á fjölbreyttum búnaði og þjálfunaraðferðum séu lykilatriði til að forðast að þrýstingurinn lendi ekki síendurtekið á sama svæði munnsins.“
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link