Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Ráslistar fyrir skeiðmót Meistaradeildarinnar

  • 19. mars 2026
  • Fréttir
Nú er það orðið ljóst hverjir mæta til leiks á laugardaginn þegar keppt verður í gæðingaskeiði og 150 m. skeiði á skeiðmóti Meistaradeildarinnar.

Keppnin fer fram á Brávöllum á Selfossi og hefjast leikar kl. 13:00.

Sigurvegararnir í gæðingaskeiði frá því í fyrra Árni Björn Pálsson mætir með nýja hryssu hana Elmu frá Staðarhofi en Elma hlaut 10 fyrir skeið í kynbótadómi á síðasta ári.

Hans Þór Hilmarsson vann 150 m. skeiðið í fyrra á Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði en hann hefur lánað liðsfélaga sínum Jakobi Svavari Sigurðssyni Vorsól og mætir sjálfur á Bínu frá Vatnsholti sem endaði í þriðja sæti í greininni í fyrra með fyrrum liðsfélaga þeirra Þórarni Ragnarssyni.

Uppboðsknapar eru skráðir í báðar greinar. Jóhann Kristinn Ragnarsson ætlar að taka þátt í gæðingaskeiðinu á Þórvöru frá Lækjarbotnum en þau unnu þessa grein árið 2019 í deildinni og þá kepptu þau sem villikettir. Í 150 m. skeiðinu er Daníel Gunnarsson skráður á Sigri frá Bessastöðum.

Gæðingaskeið
1 Jón Ársæll Bergmann Gljásteinn frá Íbishóli Ib bílar
2 Hans Þór Hilmarsson Penni frá Eystra-Fróðholti Hjarðartún
3 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Top Reiter / Sumarliðabær
4 Gústaf Ásgeir Hinriksson Piltur frá Sturlureykjum 2 Hestvit / Árbakki
5 Sigurður Vignir Matthíasson Hvirfill frá Mánaskál Ganghestar / Margrétarhof
6 Viðar Ingólfsson Lína frá Þjóðólfshaga 1 Hrímnir / Hest.is
7 Jakob Svavar Sigurðsson Bresi frá Efri-Hrepp Hjarðartún
8 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Mjallhvít frá Sumarliðabæ 2 Top Reiter / Sumarliðabær
9 Þorgeir Ólafsson Grunur frá Lækjarbrekku 2 Ib bílar
10 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Hörpurós frá Helgatúni Ganghestar / Margrétarhof
11 Jóhanna Margrét Snorradóttir Frontur frá Finnastöðum Hestvit / Árbakki
12 Jóhann Kristinn Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum Uppboðssæti
13 Sigurður Sigurðarson Glettir frá Þorkelshóli 2 Hrímnir / Hest.is
14 Elvar Þormarsson Ýr frá Selfossi Hjarðartún
15 Bergur Jónsson Salvar frá Hellubæ Ib bílar
16 Árni Björn Pálsson Elma frá Staðarhofi Top Reiter / Sumarliðabær
17 Hinrik Bragason Eik frá Efri-Rauðalæk Hestvit / Árbakki
18 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 Hrímnir / Hest.is
19 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Gammur frá Efri-Þverá Ganghestar / Margrétarhof
150 m. skeið
1 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Alviðra frá Kagaðarhóli Ganghestar / Margrétarhof
2 Flosi Ólafsson Orka frá Breiðabólsstað Hrímnir / Hest.is
2 Jóhanna Margrét Snorradóttir Sæla frá Hemlu II Hestvit / Árbakki
3 Jakob Svavar Sigurðsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði Hjarðartún
3 Jón Ársæll Bergmann Otra frá Fornhaga II Ib bílar
4 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Top Reiter / Sumarliðabær
4 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk Hrímnir / Hest.is
5 Hinrik Bragason Klókur frá Dallandi Hestvit / Árbakki
5 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Hörpurós frá Helgatúni Ganghestar / Margrétarhof
6 Þorgeir Ólafsson Grunur frá Lækjarbrekku 2 Ib bílar
6 Helga Una Björnsdóttir Salka frá Fákshólum Hjarðartún
7 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I Top Reiter / Sumarliðabær
7 Gústaf Ásgeir Hinriksson Piltur frá Sturlureykjum 2 Hestvit / Árbakki
8 Sigurður Vignir Matthíasson Gnúpur frá Dallandi Ganghestar / Margrétarhof
8 Benjamín Sandur Ingólfsson Gullborg frá Læk Ib bílar
9 Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu II Hrímnir / Hest.is
9 Daníel Gunnarsson Sigur frá Bessastöðum Uppboðssæti
10 Hans Þór Hilmarsson Bína frá Vatnsholti Hjarðartún
10 Teitur Árnason Hátíð frá Sumarliðabæ 2 Top Reiter / Sumarliðabær

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar