Fjölbreytt námskeiðsframboð hjá Herði
Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ hefur um langt árabil haldið uppi öflugu æskulýðsstarfi svo eftir hefur verið tekið og fékk félagið m.a. Æskulýðsbikarinn sem veittur var af Landssambandi hestamannafélaga til Harðar nú síðasta haust. Þessi vetur mun ekki verða undantekning þar á og hefur nú verið sett upp úrval af námskeiðum fyrir yngri kynslóðina. Er það allt frá námskeiðum fyrir yngstu byrjendurna upp í Knapamerkjanámskeiðin sem veita djúpa og yfirgripsmikla þekkingu á hestum og starfi í kringum þá.
Æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ er nú að fara af stað með eftirtalin námskeið:
- Knapamerki – 4. stig
- Almennt reiðnámskeið /10-14 ára
- Almennt reiðnámskeið /8-10 ára
- Pollanámskeið 2/ekki teymdir/framhald 5-7 ára
- Pollanámskeið 1/teymdir 4-5 ára
- Ásetunámskeið fyrir nemendur á keppnisnámskeiði
- Keppnisnámskeið fyrri/hluti
Ítarlegar upplýsingar og námskeiðslýsingar er að finna á vefsíðu félagsins, www.hordur.is undir „Námskeið – Námskeið æskulýðsnefndar“ og verða þar birt ný námskeið sem í vændum verða.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári