Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Allt getur gerst á skeiðmóti Meistaradeildar Líflands

  • 20. mars 2026
  • Fréttir

Hans Þór og Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði unnu keppni í 150 metra skeiði á síðasta tímabili. Jakob Svavar keppir á henni í ár og Hans Þór verður á Bínu frá Vatnsholti. Ljósmynd: Carolin Giese/Meistaradeild

Línur munu skýrast í Meistaradeild Líflands

Keppni í gæðingaskeiði og 150 metra skeiði í Meistaradeild Líflands fer fram á Brávöllum á Selfossi á morgun, laugardaginn 21.mars, og hefst mótið klukkan 13:00.

Dýrmæt stig eru í boði í einstaklings- og liðakeppni og hafa skeiðgreinar oft sett strik í reikninginn í Meistaradeild Líflands og skorið úr um það hvaða knapi og lið standa uppi sem sigurvegarar að öllum mótum loknum. Þó að hestaíþróttir sé nákvæmni íþrótta og lítið megi klikka í sterkri keppni að þá er Gæðingaskeið sú grein sem einna erfiðust er, því þar má ekkert klikka í þeim tveimur skeið sprettum sem knapar hafa til umráða. Þannig geta oft óvæntir hlutir gerst í þessari grein og skammt er á milli þess að sigra og vera í einu af neðstu sætunum. Þá er 150 metra skeið einnig tæknilega flókin grein þar sem reynir á nákvæmni og tækni knapa og flýti hrossa á skeiði. Fari eitthvað úrskeiðis í startinu hjá knapa og hesti að þá eru dýrmæt sekúndubrot fljót að tapast.

Ráslistinn í þessum greinum hefur veri kunngjörður og þar má sjá marga af flinkustu knöpum og hestum á skeiði í heiminum. Það verður því bæði spennandi og fróðlegt að fylgjast með keppninni á Laugardaginn. Allt verður að sjálfsögðu sýnt í beinni á EiðfaxaTV

Staðan í liðakeppni

Lið Hjarðartúns er ennþá með töluvert forskot á toppnum eftir sterka byrjun á keppnistímabilinu en þau hafa nú 162 stig. Top Reiter/Sumarliðabær er í öðru sæti með 126 stig og í því þriðja er Hrímnir/Hest.is með 109 stig.

V1 T2 F1 GL
Hjarðartún 38 44 44.5 35.5 162
Top Reiter/Sumarliðabær 32.5 29 24.5 40 126
Hrímnir / Hest.is 29.5 22 32.5 25 109
IB bílar 13.5 26 36 26.5 102
Ganghestar / Margrétarhof 24 32 15 25 96
Hestvit / Árbakki 33.5 18 17.5 19 88

 

Efstu 10 knapar í einstaklingskeppni

Ásmundur Ernir Snorrason leiðir í einstaklingskeppninni með 33,5 stig í öðru sæti er Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir með 30 stig. Í þriðja sætinu er svo Jakob Svavar Sigurðsson með 29 stig.

V1 T2 F1 GL Samtals
Ásmundur Ernir Snorrason 10 8 7.5 8 33.5
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 12 6 12 30
Jakob Svavar Sigurðsson 7 7 5 10 29
Jón Ársæll Bergmann 12 6 2 20
Þorgeir Ólafsson 12 5.5 17.5
Arnhildur Helgadóttir 1 10 3.5 14.5
Eyrún Ýr Pálsdóttir 2.5 5 7 14.5
Árni Björn Pálsson 7.5 5.5 13
Helga Una Björnsdóttir 4 4 3.5 11.5
Glódís Rún Sigurðardóttir 8 2 1 11

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar