Fimmgangnum frestað í Samskipadeildinni
Sökum óhagstæðrar veðurspár taldi stjórn Samskipadeildarinnar skynsamlegast að fresta fimmgangnum. „Við teljum það ekki forsvaranlegt að senda fólk út í óvissu með hestakerrur og stefna þannig fólki og dýrum í hættu. Veðrinu á ekki að slota fyrr en upp úr hádegi á morgun og þá er Samskipahöllin ekki laus.“
Nefndin vinnur hörðum höndum að því að finna nýjar mögulegar dagsetningar.
Fimmgangnum frestað í Samskipadeildinni
„Núna er þetta bara upp á við“