Dagur reiðmennskunnar í dag
Á Degi reiðmennskunnar koma fram reiðkennaraefni Háskólans á Hólum með sýnikennslu. Sýningin hefst 14:00 og er frítt inn á sýnikennsluna. Að lokinni sýningu verður hægt að kynna sér námið á Hólum í anddyri reiðhallarinnar. Þar verða nokkrir nemendur tilbúnir að svara spurningum sem tilvonandi umsækjendur hafa.
Um kvöldið fer fram Stórsýning Fáks og hefst sýningin klukkan 20:00. Á eftir sýningunni í anddyri reiðhallarinnar verður trúbator partý með Sigvalda Helga Gunnarssyni.
Hægt er að kaupa aðgangsmiða á Stórsýninguna á laugardeginum frá 14:00 og í hurð um kvöldið.
Aðgangseyrir:
Fullorðnir 3.500 kr
Unglingar og ungmenni 2.500 kr
Börn 8-13 ára 1.500 kr.
Keppnishross í Meistaradeild Líflands
Fimmgangnum frestað í Samskipadeildinni