Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Einvígi í vændum í Meistaradeild Líflands

  • 24. mars 2026
  • Sjónvarp Fréttir

Lið Top Reiter/Sumarliðabæjar tók liðaskjöldinn í báðum greinum á skeiðmóti Meistaradeildar Líflands um síðustu helgi

Hnífjafnt í liðkeppni fyrir lokakvöldið á föstudag

Það stefnir í hádramatískt lokakvöld í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum næstkomandi föstudagskvöld, þann 27. mars. Eftir harða keppni vetrarins er ljóst að baráttan um liðatitilinn stendur á milli tveggja liða sem hafa skipst á að sýna yfirburði á tímabilinu.

Tímabilið hefur verið einkar áhugavert fyrir áhugafólk um hestaíþróttir. Lið Hjarðartúns fór af stað með miklum látum og sat á toppnum eftir fyrstu þrjár greinarnar: fjórgang, slaktaumatölt og fimmgang. Þá tóku liðsmenn Top Reiter/Sumarliðabæjar við keflinu. Þau hafa verið óstöðvandi í síðustu þremur greinum – gæðingalist, gæðingaskeiði og 150 metra skeiði – og hirt liðaskjöldinn í þeim öllum.

Aðeins hálft stig sem skilur að
Fyrir lokakvöldið er staðan sú að nánast ekkert skilur liðin að og má búast við að hver einasti punktur telji í lokauppgjörinu. Top Reiter/Sumarliðabær er með 218 stig og Hjarðartún með 217,5 stig

„Besta liðið verður sent til leiks“  er meðal þess sem fram kom í viðtali við liðsmenn Top Reiter/Sumarliðabæjar þegar þau ræddu við Huldu Geirsdóttur á EiðfaxaTV eftir síðasta skeiðmót. Þar var baráttuandinn greinilegur en Teitur, liðsstjóri liðsins, lofaði hörku baráttu allt til enda og fullyrti að ekkert yrði til sparað; besta liðið yrði sent til leiks til að verja forskotið.

Það er ljóst að liðsmenn beggja liða munu leggja allt í sölurnar til að tryggja sér titilinn.

Staðan í liðakeppni

Lið Stig
Top Reiter/Sumarliðabær 218
Hjarðartún 217.5
IB bílar 154
Ganghestar / Margrétarhof 150
Hestvit / Árbakki 144
Hrímnir / Hest.is 141.5

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar