Mikil þátttaka í ljósmyndakeppni Eiðfaxa-
Mikill áhugi er fyrir ljósmyndakeppni Eiðfaxa nú sem áður og streyma inn myndir…
Alltaf er jafn gaman að fara í gegnum þessa pósta og hafa margar mjög góðar myndir borist nú þegar. Keppnin er opin öllum sem áhuga hafa á þátttöku og er enn tími til að taka myndir til að senda.
Eins og áður verða glæsileg verðlaun í boði fyrir bestu myndirnar. Eiðfaxi vill hvetja fólk til að taka með sér myndavélarnar þegar það er á ferðinni. Myndir í keppnina skal senda á netfangið [email protected] og þurfa þær að vera í JPEG sniði og í upprunalegri stærð.
Eins eru sendendur mynda beðnir um að láta fylgja fullt nafn og símanúmer.
Góða skemmtun!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH