Framhaldsskólamótið í hestaíþróttum 2013
„Nú fer að styttast í Framhaldsskólamótið í ár og viljum minna á skráningarfrest sem er 24.febrúar. Mótið verður haldið 2. mars í Reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ.
Hver skóli getur sent frá sér 3 keppendur í hverja keppnisgrein. Ef fleiri en 3 keppendur hafa áhuga á að keppa fyrir hönd skólans í hverri keppnisgrein á mótinu þá er venjan að hafa úrtökumót innan skólans til þess að velja bestu knapa og hesta. Það er ótakmörkuð skráning í skeið og fer hún fram á mótinu sjálfu.
Keppnisgreinar eru eftirfarandi:
-Tölt, T3
-Fjórgangur
-Fimmgangur
-Skeið
Það sem þarf að koma fram í skráningu er:
-Nafn knapa,
-Nafn hests, uppruna, aldur og litur
-Keppnisgrein
-hvaða hönd er riðið
Skráningar þurfa að berast fyrir 24.febrúar á e-mailið [email protected],“ segir í tilkynningu frá framhaldsskólanefnd
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH