Meistaradeild í hestaíþróttum-
Starf Meistaradeildar í hestaíþróttum er komið á fullt og er verið að leggja lokahönd á liðaskipan deildarinnar…
Vegna mikillar aðsóknar hefur stjórn deildarinnar ákveðið að bæta við einu liði þannig að liðin verða 8 í ár en ekki 7 eins og síðustu ár. Þar sem mjög stutt er í að mótaröðin hefst er ekki hægt að gefa langan tíma til að sækja um lið í deildinni.
Áhugasömum er bent á að hafa sambandi við Kristinn Skúlason í síma 822
7009 eða í senda póst á [email protected] í síðasta lagi mánudaginn 13.
desember.
Eins og undanfarin ár verða öll mót haldin í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli, nema skeiðmótið.
Sú ákvörðun var tekin að fækka mótunum um eitt í ár þannig að mótin verða
6 en ekki 7. Sú grein sem tekin hefur verið út úr mótaröðinni þetta árið er Smali en hún mun koma aftur inn að ári með breyttu sniði. Dagsetningar á mótum deildarinnar má sjá hér að neðan:
27. janúar: Fjórgangur
10. febrúar: Gæðingafimi
24. febrúar: Tölt
10. mars: Fimmgangur
27. mars: 150 m skeið og gæðingaskeið
7. apríl: T2 og flugskeið
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson