Ráslisti fyrir fjórgang

  • 24. janúar 2012
  • Fréttir
Ráslisti fyrir fjórgang

Fyrsta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum fer fram nú á fimmtudaginn kl. 19 í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli. Fyrsta grein deildarinnar er fjórgangur og hafa síðustu keppendur skilað inn upplýsingum um þau hross er þeir hyggjast keppa á.

Gera má ráð fyrir hörkuspennandi keppni á fimmtudagskvöldið því margar stórstjörnur eru skráðar til leiks. Það er Hinrik Bragason, Árbakki/Norður-Götur, sem ríður á vaðið á stóðhestinum Katli frá Kvistum og er þetta frumraun þeirra félaga í íþróttakeppni. Á eftir þeim koma mörg þaulreynd keppnishross og hátt dæmd kynbótahross sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppni. Síðastur í braut er síðan Sigurður Sigurðarson, Lýsi, sigurvegari Meistaradeildar 2011 á stóðhestinum Loka frá Selfossi en þeir félagar unnu fjórganginn í deildinni í fyrra.

Hér að neðan má sjá rásröð keppenda:

Nr      Knapar  Lið     Hestur
1       Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur  Ketill frá Kvistum
2       Sigurbjörn Bárðarson    Lýsi    Penni frá Glæsibæ
3       Þorvaldur Árni Þorvaldsson      Top Reiter / Ármót      Segull frá Flugumýri II
4       Ævar Örn Guðjónsson     Spónn.is        Þokkadís frá Efra-Seli
5       Þórdís Erla Gunnarsdóttir       Auðsholtshjáleiga       Glefsa frá Auðsholtshjáleigu
6       Elvar Þormarsson        Spónn.is        Þytur frá Oddgeirshólum
7       Sylvía Sigurbjörnsdóttir        Ganghestar / Málning    Þórir frá Hólum
8       Eyjólfur Þorsteinsson   Lýsi    Klerkur frá Bjarnanesi
9       John Kristinn Sigurjónsson      Hrímnir Indía frá Álfhólum
10      Teitur Árnason  Árbakki / Norður-Götur  Hængur frá Hæl
11      Eyvindur Mandal Hreggviðsson    Auðsholtshjáleiga       Hersveinn frá Lækjarbotnum
12      Sigurður Vignir Matthíasson     Ganghestar / Málning    Kall frá Dalvík
13      Guðmundur Björgvinsson  Top Reiter / Ármót      Hrafndynur frá Hákoti
14      Viðar Ingólfsson        Hrímnir Vornótt frá Hólabrekku
15      Ólafur Ásgeirsson       Spónn.is        Hugleikur frá Galtanesi
16      Hulda Gústafsdóttir     Árbakki / Norður-Götur  Sveigur frá Varmadal
17      Lena Zielinski  Auðsholtshjáleiga       Njála frá Velli II
18      Sara Ástþórsdóttir      Ganghestar / Málning    Sóllilja frá Álfhólum
19      Artemisia Bertus        Hrímnir Óskar frá Blesastöðum 1A
20      Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót      Asi frá Lundum II
21      Sigurður Sigurðarson    Lýsi    Loki frá Selfossi

 

Forsala aðgöngumiða á mótið er hafin og er aðgangseyrir krónur 1.500 og eru miðarnir til sölu í Líflandi, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi, Selfossi. Á sömu stöðum er einnig hægt að kaupa ársmiða á deildina en þeir kosta krónur 5.000 og með þeim fylgir DVD diskur frá Meistaradeildinni 2011.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link