Lokamótið í Áhugamannadeild Norðurlands
Þriðja og síðasta mótið í Áhugamannadeild Norðurlands fram laugardaginn 11.apríl klukkan 13:00 í Léttishöllinni á Akureyri. Keppt verður í tölti annars vegar í T3 fyrir meira keppnisvana og T7 fyrir minna keppnisvana knapa. Sýnt er beint frá mótinu á EiðfaxaTV.
Það ræðst á morgun hvaða lið og einstaklingar standa uppi sem sigurvegarar í deildinni þetta árið. Í liðakeppni er það Lið Laugarhvamms sem er á toppnum með 166 stig og þar á eftir kemur Syðra-Skörðugil með 134,5 í þriðja sætinu er svo N1 Smiðjan með 126 stig,
Í einstaklingskeppni er Spire Ohlsson efst meira vanra knapa með 47 stig í öðru sæti er Elina Manon Schrivjer með 43 stig og í þriðja sætinu María Marta Bjarkadóttir með 38,5 stig. Í flokki minnra vanra knapa er Fjóla Viktorsdóttir efst með 54 stig. í öðru sæti er Guðlaug Reynisdóttir með 50 stig og í því þriðja Eva-Lena Lohi með 45 stig.
Staðan í heildarstigakeppni
1. Lið Laugarhvamms 166 stig
2. Syðra-Skörðugil 134.5 stig
3. N1 Smiðjan 126 stig
4. Steinliggur 102.5 stig
5. Norðurlagnir 93.5 stig
6. Toyota Akureyri 89 stig
7. Austfirska þríeykið 72.5 stig
8. Trésmiðjan Stígandi 71 stig
9. KB Plast 67.5 stig
10.-11. Lið Hofteigs / Ormarsstaða
10.-11. Hestasport / Vélaval 63.5 stig
12. Austrið 62.5 stig
13. Böggur – Tengi 61.5 stig
14. Team Ilmur 48 stig
15. Kollaleira 32.5 stig
16. GS Frakt 16 stig
Meira vanir:
1. Spire Ohlsson 47 stig
2. Eline Manon Schrijver 43 stig
3. María Marta Bjarkadóttir 38.5 stig
4. Kolbrún Grétarsdóttir 38 stig
5. Gréta B. Karlsdóttir 35.5 stig
6.-7. Mathilde Larsen 29 stig
6.-7. Sveinn Brynjar Friðriksson 29 stig
8. Kolbrún Stella Indriðadóttir 28 stig
9. Aldís Ösp Sigurjónsdóttir 27 stig
10. Jón K. Sigmarsson 26.5 stig
Minna vanir:
1. Fjóla Viktorsdóttir 54 stig
2. Guðlaug Reynisdóttir 50 stig
3. Eva-Lena Lohi 45 stig
4. Hrefna Hafsteinsdóttir 44 stig
5. Guðmundur Sigfússon 33.5 stig
6. Hákon Arnarson 31.5 stig
7. Sigríður Kristín Sverrisdóttir 30 stig
8. Berglind Ösp Viðarsdóttir 25.5 stig
9.-10. Melanie Hallbach 23 stig
9.-10. Víðir Kristjánsson 23 stig
Lokamótið í Áhugamannadeild Norðurlands
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Þórunn bar sigur úr býtum
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
Öskufljót og flink skeiðhross í 1.deild Hringdu