Skeiðfélagið Náttfari endurvakið

  • 16. apríl 2026
  • Fréttir

Garpar taka við verðlaunum á móti Skeiðfélagsins Náttfara árið 2018

Stefna á að halda sex skeiðleika Norðanlands í sumar

Skeiðfélagið Náttfari, sem starfar norðan heiða, hefur verið endurvakið af miklum krafti. Félagið blæs til sóknar á komandi sumri með metnaðarfullri mótaröð þar sem keppt verður á þremur stöðum á Norðurlandi. Hluti af mótaröðinni er stigakeppni um nýjan farandsbikar sem gefinn er til minningar um Björn Þorsteinsson.

Skeiðfélagið Náttfari á sér sögu aftur til ársins 2002, en þá var félagið stofnað til að efla skeiðíþróttina á Norðurlandi. Eftir nokkur hlé í starfseminni er nú kominn nýr kraftur í hópinn. „Nú eru margir öflugir menn komnir hérna á svæðið fyrir norðan til viðbótar við þá sem fyrir voru og þann kraft ætlum við að nýta til að fara aftur af stað,“ segir Gestur Júlíusson, einn af forsvarsmönnum félagsins.

Stuðningsafl við hestamannafélögin

Náttfari er starfrækt sem deild innan Hestamannafélagsins Léttis á Akureyri og er hugsað sem stuðningsfélag við hestamannafélögin fyrir norðan, svipað og Skeiðfélagið starfar með Sleipni á Suðurlandi. „Markmiðið var og er að efla þátttöku í skeiðgreinum og hjálpa knöpum hér að ná meiri árangri,“ útskýrir Gestur. Hann segir nafn félagsins eiga skýra skírskotun í hinn þekkta flugagæðing Náttfara frá Ytra-Dalsgerði.

Keppt um minningarbikar Björns Þorsteinssonar

Mótaröðin í sumar samanstendur af sex mótum þar sem keppt verður í 250 m, 150 m og 100 m skeiði. Verðlaunað verður fyrir efstu þrjú sætin í hverri grein á hverju móti, en samhliða verður stigakeppni yfir allt sumarið.

Stigahæsti knapi mótaraðarinnar hlýtur sérstakan farandsbikar sem gefinn er af Þorsteini Björnssyni, til minningar um föður hans, Björn Þorsteinsson.

Björn var hæfileikaríkur hestamaður og fyrirmynd margra í skeiðreiðmennsku. Hann ræktaði þá meðal annars hinn kunna skeiðhest Eitil frá Akureyri og okkur langaði að halda minningu hans á lofti,“ segir Gestur.

Dagskrá sumarsins: Sex mót á þremur stöðum

Mótin verða haldin á Akureyri, Dalvík og á Hólum í Hjaltadal. Gestur hvetur knapa til að láta ekki sitt eftir liggja: „Ég hvet alla knapa hér fyrir norðan til að koma sér upp skeiðhestum fyrir sumarið og taka þátt í mótum okkar“  Segir Gestur að lokum og horfir björtum augum fram á sumarið.

Hér má sjá hugaðar dagsetningar mótaraðarinnar:

1. Skeiðleikar: Hólar í Hjaltadal – 20.-22. maí

2. Skeiðleikar: Akureyri – 5. júní

3. Skeiðleikar: Akureyri – 12. júní

4. Skeiðleikar: Akureyri – 20. júní

5. Skeiðleikar: Akureyri – 6.-7. ágúst

6. Skeiðleikar: Dalvík – 21. ágúst

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link