1. deildin í hestaíþróttum Páll Bragi og lið Fornusanda sigruðu í 1.deild Hringdu

  • 20. apríl 2026
  • Fréttir

Páll Bragi Hólmarsson sigurvegari einstaklingskeppni 1.deildar. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr

Lokahóf 1.deildar fór fram á laugardaginn síðasta

Lokamótið í 1.deild Hringdu í hestaíþróttum fór fram á laugardaginn. Þar var keppt í tveimur skeiðgreinum, 100 metra flugskeiði og gæðingaskeiði. Glæsilegt lokahóf fór svo fram um kvöldið í Arnarfelli veislusal Hestamannafélagsins Spretts. Þar voru heildarsigurvegarar mótaraðarinnar heiðraðir og mikið um dýrðir.

Alls voru mótin sex talsins og keppt í sjö keppnisgreinum; fjórgangi, gæðingalist, slaktaumatölti, fimmgangur, tölt, gæðingaskeið og 100 metra skeið.

Páll Bragi sigurvegari

Páll Bragi Hólmarsson vann sigur í einstaklingskeppni með 49 stig. Hann tók ekki þátt í fyrstu tveimur greinunum en kom svo sterkur inn í þeim fimm síðustu. Hann vann bæði slaktaumatölt og tölt á Vísi frá Kagaðarhóli. Hann reið til A-úrslita í fimmgangi á Takti frá Hrísdal þar sem þeir urðu í sjötta sæti. Hann átti svo gott mót í skeiðgreinum þar sem hann varð annar bæði í gæðinga- og 100 metra skeiði á Snjalli frá Austurkoti. Í öðru sæti varð Þórdís Inga Pálsdóttir með 40 stig og í því þriðja Katla Sif Snorradóttir með 33,5 stig.

  1. Páll Bragi Hólmarsson – 49 stig
  2. Þórdís Inga Pálsdóttir – 40 stig
  3. Katla Sif Snorradóttir – 33,5 stig
  4. Benedikt Ólafsson – 30,5 stig
  5. Hlynur Guðmundsson – 25 stig
  6. Lea Schell – 23,5 stig
  7. Fredrica Fagerlund – 20 stig
  8. Birna Olivia Ödqvist – 14 stig
  9. Þorvaldur Logi Einarsson 13,5 stig
Lið Fornusanda efst í liðakeppni

Í liðakeppni var það Lið Fornusanda sem vann heildarsigur, hlutu alls 352,5 stig. Liðsmenn Fornusanda eru Sigvaldi Lárus Guðmundsson, Ólafur Þórisson, Lea Schell, Hlynur Guðmundsson og Katrín Sigurðardóttir, liðsstjóri liðsins er Þorvarður Friðbjörnsson. Í öðru sæti varð lið Sportfáka með 327 stig og í þriðja sætinu lið Hrímnis með 321 stig.

Liðakeppni V1 GL T2 F1 T1 PP1 100 m Samtals
Fornusandar 58,5 60,5 56 56 43,5 27 51 352,5
Sportfákar 30 34 41 58,5 59,5 43 61 327
Hrímnir 59,5 47 36,5 41 31 58 48 321
Kidka/hestakofi 35 42,5 19 35,5 36,5 58 50 276,5
Vindás/stóðhestaval 34,5 34 35,5 39 55,5 26 13,5 238
HorseDay 31,5 29,5 49 12 20,5 34 40 216,5
Hringdu 25 33,5 25,5 30 31 24 18 187
Tommy Hilfiger 26 19 37,5 28 22,5 30 18,5 181,5

Liðsmenn Fornusanda fagnar sigri í liðakeppni á lokahófi 1.deilar. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link