Kaupa þrjá dýraspítala á Íslandi

  • 21. maí 2026
  • Fréttir
Dýralæknir sem seldi dýraspítala á Akureyri segir Altano sérhæfa sig í hestum.

Fréttaskýringarþátturinn Þetta helst fjallaði um kaup Altano, þýskt stórfyrirtæki í eigu svissnesks sjóðs, sem keypti þrjá dýraspítala á Íslandi í fyrra. Þetta eru dýraspítalarnir Í Glæsibæ í Skagafirði, Lögmannshlíð á Akureyri og Drösull í Kópavogi. En samkvæmt heimildum Þetta helst sérhæfir Altano sig í dýraspítölum fyrir hesta.

Einhverjir íslenskir bændur á starfssvæðum dýraspítalanna á Norðurlandi hafa spurt sig spurninga um fyrirtætlanir þýska fyrirtækisins og hvað það ætlist fyrir með þessum kaupum.

Starfsemin með óbreyttu sniði

Gestur Páll Júlíusson dýralæknir og einn af fyrri eigendum Dýraspítalands Lögmannshlíðar á Akureyri er einn af þeim einn af þeim dýralæknum sem hefur selt eignarhlut sinn í spítalanum til þýska stórfyrirtækisins Altano en heldur sjálfur áfram að vinna þar. Gestur segir að starfsemi Lögmannshlíðar verði með óbreyttu sniði þrátt fyrir söluna til Altano.

„Við eigum allt okkar bændum að þakka og dýraeigendum. Við munum þjónusta þá áfram í algjörlega óbreyttu formi nema bara af meiri krafti og meiri þjónustu,“ segir Gestur Páll í viðtali við Þetta helst.

Altano hefur á keypt fjölmarga dýraspítala víðs vegar um heiminn á liðnum árum. Meðal annars ellefu í Danmörku og tvo dýraspítala sem sérhæfa sig alfarið í hestum í Svíþjóð samkvæmt þarlendum ársreikningum þessara félaga. Altano á nú meira en 100 dýraspítala víða um heiminn og er með um 2600 starfsmenn.

Gæluverkefni fyrir fyrirtækið

Í viðtalinu við RÚV segir Gestur einnig að þessi viðskipti séu ekki stór fyrir Altano og að um sé að ræða gæluverkefni fyrir fyrirtækið sem byggi fyrst og fremst á áhuga þýska fyrirtækisins á íslenska hestinum. „Ég held að það sé fyrst og fremst þessi almenni áhugi á hestum. Svo náttúrlega er Ísland perla fyrir hesta. Við erum náttúrlega með kringum 60 til 70 þúsund íslenska hesta á Íslandi. Í heiminum eru þeir cirka 300 þúsund þannig að það er orðið alþjóðasamfélag líka, íslenski hesturinn og allt í kringum hann“ segir Gestur.

Í ársreikningi íslensks dótturfélags Altano Group kemur fram að kaupverð dýraspítalana þriggja hafi samtals verið 625 milljónir króna. Dýraspítalinn Lögmannshlíð var keyptur á 285 milljónir króna, spítalinn í Glæsibæ á tæpar 223 milljónir og Drösull á tæplega 147 milljónir.

Hægt er að hlusta á þátt Þetta helst HÉR.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link