Hugsýn hæst dæmda hryssa allra tíma
Hugsýn frá Ketilsstöðum á kynbótasýningu á Hellu í fyrra Mynd: aðsend
Það er bjart yfir íslenskri hrossarækt og hver stórsigurinn unnin á fætur öðrum í ræktunarstarfinu. Ljóst er að Landsmótið á Hólum í sumar verður ein allsherjar veisla og hægt er að fylgjast með þessu öllu saman á EiðfaxaTV.
Hugsýn hæst dæmd frá upp
Hugsýn frá Ketilsstöðum er nú hæst dæmda hryssa frá upphafi kynbótadóma og sló þar með Arneyju frá Ytra-Álandi við, sem fram að þessu hafði verið sú sem hæstan dóm hlaut. Hugsýn hlaut í aðaleinkunn 8,99 með 8,63 fyrir sköpulag og 9,18 fyrir hæfleika. Sýnandi hennar var eigandinn Elin Holst en ræktendur eru Bergur Jónsson og Olil Amble. Hlaut hún einkunnina 10,0 fyrir samstarfsvilja og 9,5 fyrir tölt og fegurð í reið.
Hugsýn er undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum og Hugrökk frá Ketilsstöðum. Álfaklett þarf vart að kynna Sleipnisbikarhafi frá síðasta Landsmóti og sonur heiðursverðlaunahrossa Stála frá Kjarri og Álfadísar frá Selfossi. Hugrökk er undan Natani frá Ketilsstöðum sem var undan Kolfinni frá Kjarnholtum og Væntingu frá Ketilsstöðum en móðir Hugrakkar er Djörfung frá Ketilsstöðum sem er undan Álfasteini frá Selfossi og Framkvæmd frá Ketilsstöðum.
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
Tinni slær heimsmet