Áfangaskýrsla landsmótsnefndar LH

  • 20. október 2010
  • Fréttir
Áfangaskýrsla landsmótsnefndar LH

Opinn fundur var haldinn í ÍSÍ húsinu í Laugardal í dag. Fundurinn var ekki fjölmennur en fundarefnið var að…

landsmótsnefnd LH kynnti áfangaskýrslu sína sem hún hefur unnið á stuttum starfstíma en nefndin var skipuð og sett í gang í septembermánuði. Þessi stutti starfstími nefndarinnar hefur að sjálfsögðu ekki skilað miklu umfram það að nefndin hefur skoðað gögn um fyrri landsmót og hvernig þau hafa þróast en í skýrslunni eru samanteknar upplýsingar sem án efa munu reynast gagnlegar er starfið heldur áfram.
Sveinbjörn Sveinbjörnsson formaður nefndarinnar fór í gegnum skýrsluna og fræddi fundinn um starf nefndarinnar.
Jóna Fanney Friðriksdóttir framkvæmdarstjóri Landsmóts sagði frá undirbúningi Landsmóts 2010 og hvar hann var staddur er mótið var blásið af. Einnig fræddi hún fundargesti um það hverlags verkefni eitt landsmót er og sýndi á mynd alla verkþætti á hverjum tímapunkti.
Hjörný Snorradóttir hefur ný lokið gerð viðamikillar ritgerðar sem er meistaraprófsritgerð Í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og er titill ritgerðarinnar „Stefnumótun – Landsmót hestamanna“
Ritgerðin er tímamóta verk er varðar málefnalega umfjöllun um landsmótið. Þar er samankominn mikill fróðleikur um sögu og þróun mótanna. Ítarleg skoðanakönnun meðal innlendra og erlendra hestamanna, ræktenda og keppenda gefur góða mynd af afstöðu manna til margra þátta er tengjast landsmótum.
Framkvæmdarstjórar síðustu móta vitna einnig um fjölmörg atriði.
Hjörný leggur áherslu á fagleg vinnubrögð við stefnumótun, menn skilgreini landsmótin og setji fram framtíðarsýn. Hjörný hefur gefið LH og nefndinni kost á að nýta mastersritgerðina um landsmótin.
Landsmótsnefndin mun væntanlega kynna skýrslu sína á landsþingi LH sem hefst á föstudaginn kemur norður á Akureyri og mun starfinu væntanlega haldið áfram þar.
 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link