Landsmót 2026 Viltu sýna þína ræktun á LM2026?

  • 16. júní 2026
  • Fréttir
Frestur til að sækja um þátttöku í sýningu ræktunarbúa á Landsmóti rennur út á miðnætti í kvöld.

Sýningar ræktunarbúa skipa heiðurssess á Landsmótum hestamanna og á LM2026 verður engin breyting þar á. Tilhögun sýninga verður með svipuðu sniði og verið hefur á undanförnum mótum, þ.e. að þátttaka verði miðuð við 10 ræktunarbú, auk tveggja boðsbúa þiggi þau boðið.

Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar hlaut viðurkenninguna ræktunarbú ársins 2025 og er þeim boðin þátttaka auk keppnishestabús ársins sem var Strandarhöfuð.

Ræktunarbúin eru á dagskrá mótsins fimmtudagskvöldið 9. júlí og mun áhorfendum verða boðið að kjósa bestu ræktunarbússýninguna. Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Landsmóts.

Síðasti dagur til að sækja um þátttöku er í dag, 16. júní, en frestur er til miðnættis.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link