Landsamband hestamanna Töltveislunni lokið á Sörlastöðum

  • 17. júní 2026
  • Fréttir

Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði Mynd: Gunnhildur Ýrr

Í dag fór fram forkeppni í tölti T1 og T2 á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna

Dagurinn hófst á forkeppni í slaktaumtölti í ungmennaflokki. Þar var Lilja Rún Sigurjónsdóttir hlutskörpust á Draupni frá Dimmuborg með 7,57 í einkunn. Elva Rún Jónsdóttir á Júpiter frá Votumýri 2 kom þar á eftir og þriðja Fanndís Helgadóttir á Ötuli frá Narfastöðum með 7,33 í einkunn.

Næst var keppni í tölti í ungmennaflokki þar var Elva Rún mætt aftur til leiks en nú á Goða frá Garðabæ og tryggðu þau sér efsta sætið með 7,50 í einkunn. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal varð annar á Gretti frá Hólum með 7,33 í einkunn og í því þriðja Eik Elvarsdóttir á Hallveigu frá Holtabrún.

Glæsilegir töltarar

Seinni partinn var komið að meistaraflokknum og var byrjað á keppni í slaktaumatölti. Arnhildur Helgadóttir og Frosti frá Hjarðartúni áttu glæsilega sýningu og uppskáru 8,70 í einkunn. Hæsta einkunn sem þau hafa farið í og leiða þau eftir forkeppni. Jakob Svavar Sigurðsson og Hrefna frá Fákshólum eru önnur með 8,57 og í þriðja eru þeir Gústaf Ásgeir Hinriksson og Gýmir frá Skúfslæk.

Jöfnuðu metið sitt

Loka keppni dagsins var forkeppni í tölti í meistaraflokki. Þar var enginn svikinn en þvílíka veislan sem hún var og ekki skemmdi veðurblíðan fyrir í Hafnarfirðinum. Þau Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði fóru mikinn og uppskáru 9.27 í einkunn og jöfnuðu metið sem þau sett á Reykjavíkurmeistaramótinu hér fyrr í mánuðinum.

Í öðru sæti eru Jakob Svavar Sigurðsson og Skarpur frá Kýrholti með 8,93 í einkunn og jafnir í þriðja eru Flosi Ólafsson á Röðli frá Haukagili á Hvítársíðu og Benjamín Sandur Ingólsson á Eldingu frá Hrímnisholti með 8,77 í einkunn.

Fjórgangur á morgun

Á morgun fer fram keppni í fjórgangi og hefst mótið kl 13:00 á forkeppni í ungmennaflokki. Síðan er farið yfir í keppni í meistaraflokki og lýkur deginum á gæðingaskeiði. Dagskrá og ráslista er hægt að sjá í HorseDay appinu.

Mótið er sýnt í beinni á EiðfaxaTV.

Tölt T1 – Meistaraflokkur – Forkeppni

Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði 9,27
2 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti 8,93
3-4 Benjamín Sandur Ingólfsson Elding frá Hrímnisholti 8,77
3-4 Flosi Ólafsson Röðull frá Haukagili Hvítársíðu 8,77
5 Brynja Kristinsdóttir Sunna frá Haukagili Hvítársíðu 8,63
6 Jóhanna Margrét Snorradóttir Orri frá Sámsstöðum 8,37
7 Páll Bragi Hólmarsson Vísir frá Kagaðarhóli 8,23
8 Hanna Rún Ingibergsdóttir Hvarmur frá Brautarholti 8,20
9 Viðar Ingólfsson Sókrates frá Skáney 8,00
10-11 Hulda Gústafsdóttir Flauta frá Árbakka 7,77
10-11 Hinrik Bragason Hugur frá Hólabaki 7,77
12 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 7,70
13 Sara Sigurbjörnsdóttir Dísa frá Syðra-Holti 7,57
14 Hermann Arason Náttrún Ýr frá Herríðarhóli 7,43
15 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Hringhenda frá Geirlandi 7,37
16 Helga Una Björnsdóttir Hetja frá Hofi I 7,30
17 Thelma Dögg Tómasdóttir Bóel frá Húsavík 7,10
18 Herdís Lilja Björnsdóttir Garpur frá Seljabrekku 7,07

Tölt T2 – Meistaraflokkur – Forkeppni

Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Arnhildur Helgadóttir Frosti frá Hjarðartúni 8,70
2 Jakob Svavar Sigurðsson Hrefna frá Fákshólum 8,57
3 Gústaf Ásgeir Hinriksson Gýmir frá Skúfslæk 8,37
4 Helga Una Björnsdóttir Björt frá Kráku 8,23
5 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum 8,17
6 Gústaf Ásgeir Hinriksson Kraflar frá Flagbjarnarholti 7,90
7 Glódís Rún Sigurðardóttir Ottesen frá Ljósafossi 7,70
8 Hanne Oustad Smidesang Tónn frá Hjarðartúni 7,67
9 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum 7,57
10 Sigurður Vignir Matthíasson Víkingur frá Hlemmiskeiði 2 7,53
11 Eyrún Ýr Pálsdóttir Drangur frá Steinnesi 7,43
12 Hinrik Bragason Hryggur frá Hryggstekk 7,37
13 Reynir Örn Pálmason Fjóla frá Vetri 7,33
14 Henna Johanna Sirén Herjann frá Eylandi 7,30
15 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Þór frá Hekluflötum 7,27
16 Sigurður Vignir Matthíasson Hvirfill frá Mánaskál 7,20
17 Kristófer Darri Sigurðsson Úlfur frá Hrafnagili 7,17
18 Hinrik Bragason Tangó frá Heimahaga 7,13
19 Lea Schell Húni frá Efra-Hvoli 6,93
20 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Kjarnholtum I 6,83
21 Glódís Rún Sigurðardóttir Hrifning frá Hamarshjáleigu 6,63

Tölt T1 – Ungmennaflokkur – Forkeppni

Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Elva Rún Jónsdóttir Goði frá Garðabæ 7,50
2 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Grettir frá Hólum 7,33
3 Eik Elvarsdóttir Hallveig frá Holtabrún 7,13
4 Eva Kærnested Logi frá Lerkiholti 7,00
5 Hildur María Jóhannesdóttir Viðar frá Klauf 6,93
6 Ingunn Rán Sigurðardóttir Svört frá Einhamri 6,83
7 Svandís Aitken Sævarsdóttir Eik frá Stokkseyri 6,80
8-9 Þórgunnur Þórarinsdóttir Hetja frá Hestkletti 6,77
8-9 Dagur Sigurðarson Stjörnusteinn frá Egilsstöðum 1 6,77
10 Hekla Rán Hannesdóttir Auður frá Hamarsey 6,73
11 Þórgunnur Þórarinsdóttir Rut frá Hestkletti 6,73
12-15 Helgi Freyr Haraldsson Hrynjandi frá Strönd II 6,70
12-15 Sara Dís Snorradóttir Kvistur frá Reykjavöllum 6,70
12-15 Sigurður Steingrímsson Rún frá Koltursey 6,70
12-15 Ragnar Snær Viðarsson Bylur frá Kvíarhóli 6,70
16 Kolbrún Sif Sindradóttir Hallsteinn frá Hólum 6,57
17 Matthías Sigurðsson Klara frá Hárlaugsstöðum 2 6,37
18 Auður Karen Auðbjörnsdóttir Gletta frá Hryggstekk 6,33
19 Sigurður Dagur Eyjólfsson Andrá frá Mykjunesi 2 6,30
20 Snæfríður Ásta Jónasdóttir Feykir frá Strandarhöfði 6,23

Slaktaumatölt T2 – Ungmennaflokkur – Forkeppni

Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Draupnir frá Dimmuborg 7,57
2 Elva Rún Jónsdóttir Júpíter frá Votumýri 2 7,40
3 Fanndís Helgadóttir Ötull frá Narfastöðum 7,33
4 Kolbrún Sif Sindradóttir Feldur frá Höfðaborg 7,10
5 Camilla Dís Ívarsd. Sampsted Ófeigur frá Þingnesi 7,03
6 Dagur Sigurðarson Blakkur frá Traðarholti 7,03
7 Milla Rydström Logan Seifur frá Brekkubæ 6,97
8 Matthías Sigurðsson Silfurtoppur frá Reykjavík 6,73
9 Matthías Sigurðsson Morgunroði frá Sauðárkróki 6,60
10 Þórdís Agla Jóhannsdóttir Laxnes frá Klauf 6,53
11 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Þytur frá Stykkishólmi 6,53
12 Selma Leifsdóttir Hjari frá Hofi á Höfðaströnd 6,50
13 Auður Karen Auðbjörnsdóttir Hátíð frá Garðsá 6,47
14 Vigdís Anna Hjaltadóttir Gljái frá Austurkoti 6,43
15 Júlía Björg Gabaj Knudsen Medína frá Ármóti 6,40
16 Unnur Erla Ívarsdóttir Víðir frá Tungu 6,10
17 Ragnar Snær Viðarsson Hlynur frá Reykjavík 6,03
18 Sigurður Dagur Eyjólfsson Andrá frá Mykjunesi 2 5,77
19 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Stjarna frá Morastöðum 4,73

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link