Alfa og Sigursteinn mörðu sigur í tölti

  • 2. júlí 2011
  • Fréttir
Alfa og Sigursteinn mörðu sigur í tölti

Sigursteinn Sumarliðason og  Alfa frá Blesastöðum 1A  mörðu sigur í töltkeppni Landsmót með litla 8,94 í lokaeinkunn. Risaeinkunnir féllu í úrslitunum. Alfa og Sigursteinn hlutu t.d. 9,33 fyrir yfirferðartölt. Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi höfnuðu í 2. sæti eftir að hafa hlotið lægstu einkunn af keppendunum fyrir hægt tölt, 7,80. Þeir hífðu sig þó upp í annað sætið með stórkostlegum hraðabreytingum en þar fengu þeir 9,33 í einkunn, og fyrir yfirferðina hlutu þeir 9,17 í einkunn. Ekki var laust við að Sigursteinn hafi verið í nokkru losti við verðlaunaafhendingu, honum stökk varla bros en fagnaði þó vel í sigurhringnum með töltbikarinn eftirsótta að vopni.

Meðfylgjandi eru lokaeinkunnir:

1 Sigursteinn Sumarliðason/ Alfa frá Blesastöðum 1A    8,94 

2 Viðar Ingólfsson / Tumi frá Stóra-Hofi       8,78     

3 Steingrímur Sigurðsson / Mídas frá Kaldbak   8,67     

4 Jakob Svavar Sigurðsson / Árborg frá Miðey   8,28     

5 Hulda Gústafsdóttir / Sveigur frá Varmadal   8,22

6 Halldór Guðjónsson / Nátthrafn frá Dallandi  8,22 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link