Landsamband hestamanna Teitur og Sigurður Íslandsmeistarar í 150 m. skeiði

  • 19. júní 2026
  • Fréttir

Verðlaunahafar í 150 m. skeiði í meistaraflokki Mynd: Gunnhildur Ýrr

Niðurstöður úr kappreiðunum á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna.

Dagurinn í dag á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna hófst á seinni umferðinni í kappreiðum. Nokkuð var um afskráningar en mikið eru um að vera þessa dagana hjá knöpum t.d. yfirlit á þremur kynbótasýningum.

Nokkuð var um spennandi spretti og átti það sérstaklega við í þeim síðasta þegar þeir Hans Þór Hilmarsson á Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði og Teitur Árnason á Hátíð frá Sumarliðabæ 2 öttu kappi.  Fór svo að Teitur og Hátíð fóru 150 metrana á besta tímanum 13,88 sek. og Hans Þór og Vorsól enduðu í öðru sæti með tímann 14,03 sek. Í þriðja sæti varð Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II með tímann 14,10 sek.

Sigurður Steingrímsson og Gjafar frá Hrafnsstöðum áttu besta tímann í ungmennaflokknum. Þeir fóru 150 metrana á 14,94 sek og eru Íslandsmeistarar í 150 m. skeiði í ungmennaflokki.

Sýnt er beint frá mótinu á EiðfaxaTV en í dag verður keppt í b úrslitum.

Skeið 150m P3

Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Teitur Árnason Hátíð frá Sumarliðabæ 2 13,88
2 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði 14,03
3 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 14,10
4 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I 14,15
5 Sigurbjörn Bárðarson Vökull frá Tunguhálsi II 14,43
6 Helga Una Björnsdóttir Salka frá Fákshólum 14,51
7 Ingibergur Árnason Flótti frá Meiri-Tungu 1 14,57
8 Þorgeir Ólafsson Grunur frá Lækjarbrekku 2 14,74
9 Sigurður Vignir Matthíasson Tryggur frá Selfossi 14,74
10 Benjamín Sandur Ingólfsson Gullborg frá Læk 14,84
11 Larissa Silja Werner Hylur frá Kjarri 14,93
12 Unnur Rún Sigurpálsdóttir Elva frá Miðsitju 15,04
13 Bjarki Fannar Stefánsson Otra frá Fornhaga II 15,59
14-15 Daniel Gunnarsson Skálmöld frá Torfunesi 0,00
14-15 Þórarinn Ragnarsson Bína frá Vatnsholti 0,00

Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Sigurður Steingrímsson Gjafar frá Hrafnsstöðum 14,94
2 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Alviðra frá Kagaðarhóli 14,95
3 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kári frá Morastöðum 14,97
4 Matthías Sigurðsson Þrymur frá Bergholti 15,08
5 Sigurbjörg Helgadóttir Hörpurós frá Helgatúni 15,20
6 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Sæla frá Hemlu II 15,29
7 Viktor Óli Helgason Snædís frá Kolsholti 3 15,44

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link