Eins og kettir í kringum heitan graut

  • 13. nóvember 2012
  • Fréttir

Myndin sýnir stangir með einjárnung og tunguboga.

Engra frekari rannsókna er þörf á áverkum í munni keppnis- og sýningahrossa. Niðurstöðurnar liggja fyrir og þær eru skýrar

SKOÐUN:

Þótt niðurstöður áverkaskýrslu Sigríðar Björnsdóttur, dýralæknis, séu skýrar og bendi ótvírætt til að mél með tunguboga, einkum stangamél, valdi keppnis- og sýningarhrossum þjáningum hefur enginn kjark til að tala skýrt og taka afstöðu. Menn fara í kring um niðurstöðurnar eins og kettir í kring um heitan graut.

Yfirdýralæknir segir enga þörf á að banna mél með tunguboga, það hljóti alltaf að vera spurning um hvernig á er haldið hvort þau valdi skaða eða ekki. Formaður LH leggur til að yfirdýralæknir rannsaki málið betur og komi með tillögu. Sigríður segir að áverkarnir séu ekki knapatengdir, skoða verði málið heildstætt.

Þetta er froða. Hvernig á að rannsaka málið betur? Meiða keppnishross í nokkur ár í viðbót og gera nýja áverkaskýrslu. Firra! Til grundvallar nú liggur mat sérfræðinga á hundruðum ef ekki þúsundum hrossa á tveimur Landsmótum og einu Íslandsmóti. Það hefðu einhverntíma þótt haldbær rannsóknargögn til að byggja á. Það er líka froða að segja að áverkarnir séu ekki knapatengdir. Minni ég þar á klisjuna: Engin mél eru harðari en höndin sem heldur í tauminn.

Það er knapinn sem velur beislið upp í hestinn, eða fullorðnir forráðamenn ef um börn er að ræða. Ábendinar og grunur um skaðsemi méla með tunguboga hefur lengi legið fyrir. Sá knapi sem ekki fylgist með hesti sínum af meiri nærgætni en svo að hann þarf að ljúka keppni á skilorði getur varla talist mikill hestamaður og íþróttamaður.

Eftir kynningarfund LH og Sigríðar Björnsdóttur á áverkaskýrslunni þarf ekki að fletta blöðum frekar. Sú skylda hvílir nú á stjórn LH að banna mél með tunguboga í keppni og sýningum á vegum samtakanna þar til sannað verður, finni einhverjir sig knúna til þess, að þau valdi ekki þeim skaða sem ítarlegar rannsóknir gefa sterklega til kynna. Reynist niðurstöður áverkaskýrslu Sigríðar Björnsdóttur vera rangar þá er sjálfssagt að taka mélin í notkun aftur. Þangað til á hesturinn að njóta vafans.

Einnig þarf að vera skýrt að meidd hross taki ekki þátt í keppni og sýningum, eins og lög og reglur gera ráð fyrir. Þar eiga ekki nein áverkastig að koma til álita. Meiddur hestur er meiddur hestur, hvort sem það er lítið eða mikið. Hann fær engu um það ráðið hvort hann tekur þátt í keppni eða ekki og fær ekki að segja sitt álit.

Jens Einarsson, ritstjóri

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link