Opið ísmót á Vatnshlíðarvatni
Opið ísmót verður haldið á Vatnshlíðarvatni næstkomandi sunnudag 28.febrúar klukkan eitt (13:00). Keppt verður í A-og B-flokki, tölti og í flokki 16 ára og yngri.
Skráning er hjá Hönnu og Gumma Varmalæk í síma 8966887 eða á netfangið [email protected] og keppendur þurfa að vera búnir að skrá sig fyrir hádegi á laugardaginn 27.febrúar.
Skráningargjald er 1000 kr.og greiðist á staðnum áður en lagt er að stað í braut. Jónína formaður og Guðmundur Þór taka við greiðslum.
Um að gera að taka fram fákana og skella sér á ísinn.
Nánari Upplýsingar á síðu félagsins www.123.is/stigandafelagar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH