Sigurbjörn með sýnikennslu í Herði

  • 11. febrúar 2010
  • Fréttir
Sigurbjörn með sýnikennslu í Herði

Hinn stórsnjalli tamningameistari Sigurbjörn Bárðarson verður með sýnikennslu í nýrri reiðhöll Harðarmanna laugardaginn 13. febrúar klukkan 16.00. 

Sigurbjörn byrjar á sýnikennslu á sínum hesti og svo munu nokkrir eigendur sýna hesta sína í reið og lýsa helstu vandamálum sem þeir kljást við.  Farið verður yfir hvernig hesturinn verður bættur og Sigurbjörn leiðir áhorfendur í gegnum þær aðferðir sem hann notar til að leiðrétta og bæta. Hann hefur aldrei séð umrædda hesta né þekkir til þeirra á nokkurn hátt. 

Takið daginn frá, þetta er spennandi sýnikennsla sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Aðgangseyrir er 1000 krónur fyrir Harðarfélaga og 1500 krónur fyrir aðra, frítt fyrir 12 ára og yngri.  Börn, unglingar og ungmenni í Herði fá frían aðgang.

Fræðslunefnd Harðar

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link