Ein heildarsamtök rædd

  • 20. október 2012
  • Fréttir
Ein heildarsamtök rædd

Landsþing heldur áfram. Skipulagsnefnd ræddi félagsmál hestamennskunnar. Níu þingfulltrúar sátu í nefndinni og var Gunnar Sturluson formaður hennar. Engin þingskjöl láu fyrir nefndinni en rædd var samantekt sem unnin var á vegum stjórnar um framtíðarskipulag í félagsstarfi hestamanna.

Í máli Gunnars kom fram að nefndin teldi þörf á samráði milli hagsmundaaðila með það fyrir augum að kanna grundvöll einnar heildarsamtaka hestamennskunnar.

Rökin sem nefndin setti fram var aukinn slagkraftur og skilvirkni. Heildarsamtök gætu einnig unnið að því að stuðla frekar að nýliðun og aðgengi að íþróttinni og benti þar á mál Gunnars Steins Pálssonar frá því í gær.

Nefndin telur að núverandi félagsskipulag dragi úr mætti hestamennskunnar. Enginn einn talsmaður væri fyrir geirann, togstreyta væri um ríkisstyrki, ósamræmi væri í menntastefnunni og ólíkir hagsmunir mismunandi hestamanna rekist á.

Þá benti Gunnar á þá stöðu að ferðaþjónusta á hestum, sá þáttur sem nú skilaði mestum tekjum til hestamennskunar, ætti sér engan skipulagðan stað í kerfinu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link