Viðar, Sólon, Blakkur og Fenrir hljóta 1.verðlaun fyrir afkvæmi

  • 21. júlí 2026
  • Fréttir

Viðar frá Skör og Helga Una Björnsdóttir. Ljósmynd: Sabine Girke

Afkvæmaorð þeirra á íslensku

Nýtt kynbótamat fyrir íslenska hestinn var reiknað í lok júní að afloknum vorsýningum kynbótahrossa á Íslandi. Er sá siður viðhafður á þeim árum sem Landsmót eru haldin með þeim tilgangi að heiðra þá stóðhesta sem uppfylla skilyrði til afkvæma verðlauna. Nýtt kynbótamat verður svo reiknað í haust og þá mun m.a. liggja fyrir hvaða hryssur hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í ár hér á landi.

Fjórtan afkvæmahestar á Íslandi

Að útreikningum loknum var ljóst að á Íslandi uppfylltu þrír stóðhestar skilyrði til heiðursverðlauna þ.e. að vera með yfir 118 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins eða aðaleinkunn án skeiðs og eiga að lágmarki 50 dæmd afkvæmi. Þetta voru þeir Þráinn frá Flagbjarnarholti, Adrían frá Garðshorni á Þelamörk og Hreyfill frá Vorsabæ II. Þá uppfylltu ellefu stóðhestar skilyrði til 1.verðlauna fyrir afkvæmi með að lágmarki 15 dæmd afkvæmi og sömu skilyrði í kynbótamatinu. Þetta voru þeir Hannibal frá Þúfum, Skarpur frá Kýrholti, Veigar frá Skipaskaga, Pensill frá Hvolsvelli, Útherji frá Blesastöðum 1A, Safír frá Mosfellsbæ, Kjuði frá Dýrfinnustöðum, Rauðskeggur frá Kjarnholtum, Vökull frá Efri-Brú, Dofri frá Sauðárkróki og Vákur frá Vatnsenda. Afkvæmaorð þessarra stóðhesta eru nú aðgengileg í Worldfeng.

Stóðhestar erlendis uppfylla skilyrði til afkvæmaverðlauna

Til viðbótar við þá stóðhesta sem staddir eru á Íslandi eru sex stóðhestar staðsettir erlendis sem uppfylla skilyrði til 1. verðlauna fyrir afkvæmi. Það eru þeir Eldjárn frá Skipaskaga, Blakkur frá Þykkvabæ, Fenrir frá Feti, Jökull frá Rauðalæk, Sólon frá Þúfum og Viðar frá Skör. Fjórir þeirra hafa nú þegar hlotið afkvæmaorð í Worldfeng, en það eru þeir Blakkur, Fenrir, Sólon og Viðar. Afkvæmaorð fyrir Eldjárn verða, venju samkvæmt, kynnt í haust á hrossaræktarráðstefnu í Svíþjóð þar sem hann er staðsettur. Jökull er í Þýskalandi og verður að öllum líkindum verðlaunaður þar í landi.

Þá hafa tveir stóðhestar erlendis uppfyllt skilyrði til heiðursverðlauna; Herkúles frá Ragnheiðarstöðum, sem er líkt og Jökull í Þýskalandi, og Framherji frá Flagbjarnarholti sem er staðsettur í Noregi en ekki hafa afkvæmaorð fyrir þá birst í Worldfeng þegar þetta er ritað.

Hér að neðan er þessum fjórum stóðhestum, sem hlotið hafa afkvæmaorð í Worldfeng, gerð skil í röð eftir aðaleinkunn kynbótamatsins. Afkvæmaorðin í Worldfeng eru á ensku og aðgengileg þar, en blaðamaður Eiðfaxa gerðist svo kræfur að þýða þau yfir á íslensku, með fyrirvara um þýðingarvillur.

Viðar frá Skör

Viðar er tólf vetra gamall. Hann á 27 dæmd afkvæmi og er með 134 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins. Hann er ræktaður af Karli Áka Sigurðssyni en eigendur eru Flemming Fast og Gitte Fast Lambertsen í Danmörku. Faðir Viðars er Hrannar frá Flugumýri II en móðir er Vár frá Auðsholtshjáleigu.

Viðar frá Skör gefur stór hross. Höfuðið hefur góða eyrnastöðu en er stundum gróft. Herðar eru háar, bógar skásettir og hefur hálsinn sterka og hvelfda yfirlínu, en mætti vera hærra settur og fínlegri í kverk. Bak og lend eru mjög vel vöðvafyllt og baklínan sterk og jafnvægisgóð. Afkvæmin eru fótahá hlutfallarétt og með jafnan bol. Fætur eru prúðir og með öfluga liði, nágengir að aftan og flétta að framan. Hófar eru sterkir, prúðleiki á fax og tagl nokkuð góður og ennistoppur síður. Flest afkvæmi Viðars sem hlotið hafa dóm eru alhliðahross. Töltið er takthreint og afar skrefmikið með miklum fótaburði og góðu gangrými, en skortir stundum á léttleika. Brokkið er frábært; Afar öruggt, með mjög löngum skrefum, háum fótaburði, góðu svifi og miklu gangrými. Skeiðið í mörgum þeirra skortir jafnvægi en þau afkvæmi sem náð hafa jafnvægi á gangtegundinni eru rúm og skrefmikil með góðri fótahreyfingu. Greiða stökkið er rúmt og skrefmikið, en hæga stökkið skortir stundum burð og léttleika. Fetið er mjúkt og oftast skrefmikið. Afkvæmin sýna góðan samstarfsvilja og þjálni, Þau eru aðsópsmikil í reið, með sterka yfirlínu og mikinn fótaburð, en mættu vera reistari. Viðar gefur stór og öflug alhliðahross með kraftmikla framgöngu í reið og hlýtur hann 1. verðlaun fyrir afkvæmi.

Sólon frá Þúfum

Sólon er þrettán vetra gamall hann á 15 dæmd afkvæmi og er með 133 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins. Ræktendur eru Gísli Gíslason og Mette Camilla Moe Mannseth en eigandi er Jørgen Svendsen í Danmörku. Faðir Sólons er Trymbill frá Stóra-Ási og móðir er Komma frá Hóli við Dalvík.

Sólon frá Þúfum gefur hross í góðri stærð. Höfuðið einkennist af fínlegum eyrum og vel opnu auga, hálsinn er afar glæsilegur með mikla reisingu og góða yfirlínu en mætti stundum vera hærra settur. Bak og lend eru vöðvafyllt, bolurinn er sívalur og þau eru fótahá og eru jafnvægisgóð. Sinar fóta eru sterkar en skortir stundum á sinaskil, réttleiki afturfóta er góður en þau eru útskeif að framan. Flest afkvæmanna eru alhliðageng. Þau eru fasmikil á tölti og brokk, takthrein á skeiði og búa oft yfir framúrskarandi feti. Þau búa yfir góðri skreflengd og fótaburði á öllum gangtegundum og eru viljug og samstarfsfús. Þau eru reist og hágeng. Sólon gefur stór og myndarleg hross með góð gangskil, reisingu og samstarfsvilja, og hlýtur hann 1. verðlaun fyrir afkvæmi.

Sólon frá Þúfum og Guðmundur Björgvinsson Ljósmynd: Nicki Pfau

Blakkur frá Þykkvabæ

Blakkur er tólf vetra gamall hann á 28 dæmd afkvæmi og er með 128 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins. Hann er ræktaður af Arnari Bjarnasyni en eigendur eru Flemming Fast og Gitte Fast Lambertsen í Danmöku. Faðir Blakks er Hrannar frá Flugumýri II en móðir er Lyfting frá Þykkvabæ I.

Afkvæmi Blakks frá Þykkvabæ eru stór. Höfuðið einkennist af fínlegum eyrum, vel opnu auga og krummanefi. Hálsinn er reistur, bógar eru skásettir og vel aðskildir. Baklínan er framúrskarandi, sterk og í góðu jafnvægi og lendin vöðvafyllt. Þau eru fóta- og framhá. Fætur eru fremur grannir og skortir oft sinaskil, réttleiki fram- og afturfóta er yfirleitt frekar góður. Hófarnir eru efnisgóðir með hvelfdan botn. Blakkur gefur ýmist alhliða- eða klárhross. Þau eru framhá og léttstig á bæði tölti og brokki, en skortir stundum meira gangrými. Þau búa yfir góðri skreflengd á greiðu stökki og mjög góðu jafnvægi og fótaburði á hægri ferð. Fetið er oft frekar skrefstutt. Blakkur gefur samstarfsfús og léttstíg hross með mikinn fótaburð og hlýtur hann 1. verðlaun fyrir afkvæmi.

Blakkur frá Þykkvabæ

Fenrir frá Feti

Fenrir er tólf vetra gamall hann á 16 dæmd afkvæmi og er með 119 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins. Ræktandi er Hrossaræktarbúið FET ehf en eigandi er Nils Christian Larsen í Danmörku. Faðir Fenrir er Loki frá Selfossi og móðir er Fljóð frá Feti.

Afkvæmi Fenris frá Feti eru afar stór með myndarlegt höfuð. Hálsinn er langur og reistur, bógar mættu stundum vera skásettari. Baklínan er yfirleitt sterk en stundum gætir stífni í spjaldhrygg og lendin er gróf um mjaðmarhorn. Afkvæmin eru oft grófgerð, en búa yfir mikilli fótahæð og eru jafnvægisgóð, með sterka liði og sinar á fótum. Þau eru nágeng að aftan og útskeif að framan. Hófarnir eru efnistraustir og prúðleiki er í meðallagi. Fenrir gefur aðallega klárhross með tölti. Þau eru hágeng og skrefmikil á tölti en mættu vera mýkri. Brokkið er tilkomumikið með háum fótaburði og góðu svifi. Greiða stökkið er rúmt, skrefmikið með miklum fótaburði og hæga stökkið jafnvægisgott, framhátt og einkennist af góðum fótaburði og svifi. Fetið er taktgreint en frekar skrefstutt. Fenrir gefur stór og glæsileg klárhross með mikla útgeislun í reið og hlýtur hann 1. verðlaun fyrir afkvæmi.

Fenrir frá Feti og Árni Björn Pálsson. Ljósmynd: Jens Einarsson

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link