Kári og Gígjar hlutu hæstu einkunn í slaktaumatölti unglinga

  • 23. júlí 2026
  • Fréttir

Kári og Gígjar á forkeppni í T4 í morgun Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka

Dagskrá Íslandsmóts barna og unglinga, sem fram fer á Brávöllum á Selfossi þessa dagana, hélt áfram nú í morgun. Önnur keppnisgrein dagsins var slaktaumatölt (T4) í unglingaflokki.

Hæstu einkunn í forkeppni hlaut Kári Sveinbjörnsson á Gígjari frá Bakkakoti en þeir hlutu 7,03. Skammt á eftir honum er Gabríel Liljendal Friðfinsson á Erró frá Höfðaborg með 7,00 og í þriðja sæti er Viktor Leifsson á Hjara frá Hofi á Höfðaströnd með 6,97. Auk þessarra þriggja ríða til A-úrslita þær Kristín María Kristjánsdóttir á Skjóna frá Skálakoti og Bertha Liv Bergstað á Hólma frá Kaldbak. Knapar í sætum 6.-10. unnu sér þátttökurétt í B-úrslitum.

Niðurstöður í T4 unglingaflokki
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Kári Sveinbjörnsson / Gígjar frá Bakkakoti 7,03
2 Gabríel Liljendal Friðfinnsson / Erró frá Höfðaborg 7,00
3 Viktor Leifsson / Hjari frá Hofi á Höfðaströnd 6,97
4 Kristín María Kristjánsdóttir / Skjóni frá Skálakoti 6,90
5 Bertha Liv Bergstað / Hólmi frá Kaldbak 6,83
6 Sigríður Fjóla Aradóttir / Ekkó frá Hvítárholti 6,80
7-8 Hilmir Páll Hannesson / Goði frá Oddgeirshólum 4 6,77
7-8 Apríl Björk Þórisdóttir / Sikill frá Árbæjarhjáleigu II 6,77
9 Erla Rán Róbertsdóttir / Glettingur frá Skipaskaga 6,73
10 Hrefna Kristín Ómarsdóttir / Dynjandi frá Álfhólum 6,57
11 Bryndís Anna Gunnarsdóttir / Dreyri frá Hjaltastöðum 6,50
12 Linda Guðbjörg Friðriksdóttir / Veigar frá Lækjarbakka 6,47
13 Gabríel Liljendal Friðfinnsson / Litríkur frá Miðengi 6,43
14 Árný Sara Hinriksdóttir / Sjöfn frá Aðalbóli 1 6,40
15 Viktor Leifsson / Glaður frá Mykjunesi 2 6,37
16 Loftur Breki Hauksson / Höttur frá Austurási 6,20
17 Ragnar Dagur Jóhannsson / Mánasteinn frá Vöðlum 6,07
18 Sigrún Sunna Reynisdóttir / Sprækur frá Fitjum 5,90
19 Ásthildur Viktoría Sigurvinsdóttir / Baldur frá Margrétarhofi 5,83

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link