Rut hæst dæmd á Miðsumarssýningu á Rangárbökkum

  • 23. júlí 2026
  • Fréttir

Rut fra Valhöll og Daníel Jónsson á Landsmóti fyrr í sumar. Ljósmynd: Óðinn Örn Jóhannsson

59 hross mættu til dóms

Miðsumarssýningu á Rangárbökkum við Hellu lauk í dag með yfirlitssýningu, sýnt var frá viðburðinum á EiðfaxaTV. Alls voru sýnd 58 hross á sýningunni og þar af 50 þeirra í fullnaðardómi. Dómarar voru þau Guðbjörn Tryggvason, Heiðrún Sigurðardóttir og Sveinn Ragnarsson.

Næstu kynbótasýningar eru fyrirhugaðar um miðjan ágúst þegar sýnt verður í tvær vikur á Hellu og eina viku á Hólum í Hjaltadal.

Hæst dæmda hross sýningarinnar er Rut frá Valhöll, sex vetra gömul undan Viðari frá Skör og Emblu frá Valhöll, ræktendur og eigendur eru Óðinn Örn Jóhannsson og Laufey Ósk Christensen en sýnandi var Daníel Jónsson. Rut hlaut á vorsýningu 8,46 fyrir sköpulag og hlaut nú 8,64 fyrir hæfileika þar sem hæst ber einkunnin 9,5 fyrir skeið og 9,0 fyrir brokk og samstarfsvilja, aðaleinkunn Rutar er 8,58.

Af öðrum hátt dæmdum hrossum á sýningunni má nefna hryssuna Lottu frá Hafsteinsstöðum sem er átta vetra gömul undan Glúmi frá Dallandi og Linsu frá Hafsteinsstöðum. Ræktandi hennar er Þorgeir Baldursson sem er eigandi ásamt Eygló Hildi Ásgeirsdóttur en hún hlaut 8,52 í aðaleinkunn sýnd af Benjamín Sandi Ingólfssyni. Svörður frá Vöðlum hlaut flottan klárhesta dóm með 8,36 í aðaleinkunn sýndur af Herdísi Björgu Jóhannsdóttur.

Þá hlaut stóðhesturinn Hvirfill frá Mánaskál hörkudóm með m.a 9,5 fyrir skeið, sýndur af Sigurði Vigni Matthíassyni og Kasper frá Laugavöllum sýndur af Hafþóri Hreiðari Birgissyni hlaut einkunnina 9,5 fyrir greitt stökk.

Hross dæmd á sýningunni raðað eftir aðaleinkunn
Hross á þessu móti Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn Sýnandi Þjálfari
IS2020225709 Rut frá Valhöll 8.46 8.64 8.58 Daníel Jónsson
IS2018257341 Lotta frá Hafsteinsstöðum 8.36 8.61 8.52 Benjamín Sandur Ingólfsson Eygló Hildur Ásgeirsdóttir
IS2018156900 Hvirfill frá Mánaskál 8.56 8.44 8.48 Sigurður Vignir Matthíasson
IS2018186728 Svörður frá Vöðlum 8.49 8.28 8.36 Herdís Björg Jóhannsdóttir
IS2020288280 Dagrenning frá Túnsbergi 8.37 8.33 8.35 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
IS2020187461 Krókur frá Kambi 8.36 8.25 8.29 Viðar Ingólfsson
IS2020286060 Apollonía frá Oddhóli 8.41 8.07 8.19 Sara Sigurbjörnsdóttir
IS2021287890 Dulúð frá Brjánsstöðum 8.21 8.16 8.18 Viðar Ingólfsson Maiju Maaria Varis
IS2020201232 Fína frá Tvennu 8.56 7.96 8.17 Sara Sigurbjörnsdóttir
IS2018237403 Dáð frá Brimilsvöllum 8.39 8.05 8.17 Fanney O. Gunnarsdóttir
IS2021281903 Sameign frá Rauðalæk 8.21 8.14 8.17 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
IS2020287240 Barónessa frá Traðarholti 8.48 7.98 8.15 Jón Ársæll Bergmann Jón Ársæll Bergmann
IS2019287462 Kjarnorka frá Kambi 8.12 8.17 8.15 Viðar Ingólfsson
IS2020258977 Komma frá Hjarðarholti 8.44 8 8.15 Sara Sigurbjörnsdóttir
IS2020101343 Sæviður frá Harðbakka 8.17 8.13 8.15 Hanna Rún Ingibergsdóttir Agnar Darri Gunnarsson
IS2017284670 Hrafntinna frá Álfhólum 8.14 8.14 8.14 Benjamín Sandur Ingólfsson
IS2015287370 Blæja frá Brúnastöðum 2 8.19 8.11 8.14 Sigurður Vignir Matthíasson
IS2021201281 Stella frá Fagralundi 8.17 8.12 8.14 Fredrica Anna Lovisa Fagerlund Fredrica Anna Lovisa Fagerlund
IS2021287117 Hringhenda frá Vesturkoti 8.39 7.98 8.13 Þórarinn Ragnarsson
IS2018280378 Rún frá Koltursey 8.38 7.98 8.12 Sigurður Steingrímsson
IS2021280601 Kveðja frá Hemlu II 8.14 8.07 8.1 Árni Björn Pálsson
IS2019284552 Þrenna frá Þúfu í Landeyjum 8.24 7.98 8.08 Eygló Arna Guðnadóttir Eygló Arna Guðnadóttir
IS2020235587 Bylja frá Hægindi 8.26 7.96 8.07 Bjarki Þór Gunnarsson Bjarki Þór Gunnarsson
IS2014288560 Tromma frá Kjarnholtum I 8.3 7.94 8.07 Sigurður Sigurðarson
IS2018225590 Silvía frá Seltjarnarnesi 8.28 7.94 8.06 Sigurður Sigurðarson
IS2014281844 Halastjarna frá Heimahaga 7.94 8.09 8.04 Hrefna Kristín Ómarsdóttir
IS2019287727 Víf frá Dalbæ 8.38 7.85 8.03 Sigurður Vignir Matthíasson Leifur Einar Arason
IS2021102141 Svalur frá Mánasteini 8.49 7.77 8.02 Helgi Þór Guðjónsson Helgi Þór Guðjónsson
IS2019288282 Ýma frá Túnsbergi 8.18 7.92 8.01 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
IS2020287142 Þerna frá Litlalandi 8.39 7.79 8 Elín Magnea Björnsdóttir
IS2021287819 Vordís frá Vesturkoti 8.05 7.95 7.99 Þórarinn Ragnarsson
IS2019286596 Bína frá Herríðarhóli 8.43 7.71 7.96 Ólafur Andri Guðmundsson
IS2020237955 Urður frá Ólafsvík 7.96 7.94 7.95 Bjarki Þór Gunnarsson Bjarki Þór Gunnarsson
IS2020288901 Ósk frá Efsta-Dal II 8.11 7.84 7.93 Hans Þór Hilmarsson
IS2019256112 Háspenna frá Hofi 8.11 7.83 7.93 Ásdís Brynja Jónsdóttir Ásdís Brynja Jónsdóttir
IS2020135835 Kasper frá Laugavöllum 8.15 7.81 7.93 Hafþór Hreiðar Birgisson Kristín Karlsdóttir
IS2020236142 Bergdís frá Ferjubakka 3 7.96 7.9 7.92 Jón Herkovic
IS2021286607 Ófelía frá Króki 8.01 7.85 7.91 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
IS2022135716 Toppur frá Oddsstöðum I 8.31 7.66 7.89 Bjarki Þór Gunnarsson Bjarki Þór Gunnarsson
IS2019265164 Lukkustjarna frá Árhóli 7.95 7.83 7.87 Bjarki Fannar Stefánsson
IS2022201151 Tía frá Skógarborg 8.16 7.68 7.85 Bjarki Þór Gunnarsson Bjarki Þór Gunnarsson
IS2018201033 Ásdís frá Margrétarhofi 8.13 7.68 7.84 Fredrica Anna Lovisa Fagerlund Stefanía Vilhjálmsdóttir
IS2020288288 Selma frá Fossi 7.94 7.77 7.83 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
IS2012286426 Göldrun frá Hákoti 8.25 7.59 7.82 Þórhildur Lotta Kjartansdóttir Þórhildur Lotta Kjartansdóttir
IS2017245016 Sara frá Fremri-Gufudal 8.29 7.54 7.8 Axel Örn Ásbergsson
IS2017286647 Ragnhildur frá Mið-Seli 7.99 7.69 7.8 Gústaf Ásgeir Hinriksson
IS2016286137 Kæra frá Ármóti 8.13 7.59 7.78 Jóhannes Magnús Ármannsson Jóhannes Magnús Ármannsson
IS2021184564 Sirkill frá Skeggjastöðum 8.12 7.3 7.59 Sigurrós Sól Ásgrímsdóttir Sigurrós Sól Ásgrímsdóttir
IS2019235333 Skýja frá Byrgislæk 8.45 6.75 7.35 Tinna Rut Jónsdóttir Tinna Rut Jónsdóttir
IS2020284563 Glæta frá Skeggjastöðum 7.71 7.05 7.29 Sigurrós Sól Ásgrímsdóttir Sigurrós Sól Ásgrímsdóttir
IS2020181118 Aladín frá Holtsmúla 1 8.64 Sara Sigurbjörnsdóttir
IS2020184666 Djass frá Álfhólum 7.97 Anika Hrund Ómarsdóttir Sara Ástþórsdóttir
IS2018286102 Dýrð frá Kirkjubæ 7.83 Hanna Rún Ingibergsdóttir
IS2018284668 Gæja frá Álfhólum 8.16 Sara Ástþórsdóttir
IS2019287649 Happadís frá Jórvík 8.58 Rósa Birna Þorvaldsdóttir
IS2020236716 Kilja frá Grenjum 7.96 Fredrica Anna Lovisa Fagerlund
IS2018286320 Ljósbrá frá Heklugerði Sara Sigurbjörnsdóttir
IS2020288876 Matthildur frá Bjarkarhöfða 7.99 Sunna Sigríður Guðmundsdóttir
IS2020256109 Oddvör frá Hofi 8.33 Viðar Ingólfsson
IS2018280516 Ronja frá Baldurshaga 8.21 Hanna Rún Ingibergsdóttir

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link