Ræktunarmaður keppnishrossa verðlaunaður

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Ennþá spenna milli LH og BÍ

Ræktunarmaður keppnishrossa verður verðlaunaður á Uppskeruhátíð hestamanna, sem verður haldin á Broadway laugardaginn 6. nóvember. Er þetta augljóslega svar Landssambands hestamannafélaga við þeirri ákvörðun Bændasamtakanna og fagráðs í hrossarækt að taka EKKI þátt í uppskeruhátíðinni og verðlauna ræktunarbú ársins á samráðsfundi í hrossarækt, sem haldinn verður í Bændahöllinni 20. nóvember. Greinilegt er að ekkert hefur slaknað á spennunni á milli LH og BÍ. Þegar hafa um 700 manns bókað sig á Uppskeruhátíð hestamanna á Broadway. Engar upplýsingar liggja fyrir um það hvernig, eða hverjir, velja „ræktunarmann keppnishrossa“.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link