Apríl Björk og Esja efstar í fimmgangi í unglingflokki
Apríl Björk og Esja frá Miðsitju. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Dagskrá Íslandsmóts barna og unglinga fer nú fram á félagssvæði Sleipnis á Brávöllum á Selfossi. Í gær fór fram forkeppni í hinum ýmsu keppnisgreinum og áfram skal haldið í dag, klukkan 09:30 byrjar fyrsta keppnisgrein dagsins sem er gæðingaskeið. Hægt er að horfa á mótið í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagskrá og niðurstöður eru þá aðgengilegar í snjallforriti HorseDay.
Forkeppni í fimmgangi unglinga fór fram í gær þar sem 36 knapar tóku þátt. Efst að lokinni forkeppni er Apríl Björk Þórisdóttir á Esju frá Miðsitju með 6,57 í einkunn. Annar er Gabríel Liljendal Friðfinnsson á Fiðlu frá Egilsá með 6,47 og í þriðja sætinu er Elimar Elvarsson á Hrafntinnu frá Strandarhjáleigu með 6,43. Þá hlutu fjórir knapar einkunnina 6,40 og eru jöfn í 4.-7. sæti það eru Hjördís Halla Þórarinsdóttir fjórða á Fáki frá Oddhóli, Gabríel Liljendal á Lávarði frá Egilsá, Arnór Darri Kristinsson á Ófeigi frá Syðra-Holti og Elsa Kristín Grétarsdóttir á Hrund frá Hólaborg.
Niðurstöður forkeppni í fimmgangi unglinga
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Apríl Björk Þórisdóttir / Esja frá Miðsitju | 6,57 |
| 2 | Gabríel Liljendal Friðfinnsson / Fiðla frá Egilsá | 6,47 |
| 3 | Elimar Elvarsson / Hrafntinna frá Strandarhjáleigu | 6,43 |
| 4 | Hjördís Halla Þórarinsdóttir / Fákur frá Oddhóli | 6,40 |
| 5 | Gabríel Liljendal Friðfinnsson / Lávarður frá Egilsá | 6,40 |
| 6 | Arnór Darri Kristinsson / Ófeig frá Syðra-Holti | 6,40 |
| 7 | Elsa Kristín Grétarsdóttir / Hrund frá Hólaborg | 6,40 |
| 8 | Ragnar Dagur Jóhannsson / Öxi frá Hvammi | 6,27 |
| 9 | Svava Marý Þorsteinsdóttir / Sæmd frá Syðra-Langholti | 6,23 |
| 10-11 | Gabríela Máney Gunnarsdóttir / Koltur frá Stóra-Bakka | 6,10 |
| 10-11 | Loftur Breki Hauksson / Mánadís frá Litla-Dal | 6,10 |
| 12-13 | Sigríður Fjóla Aradóttir / Kolfreyja frá Hvítárholti | 6,07 |
| 12-13 | Helga Rún Sigurðardóttir / Lás frá Jarðbrú 1 | 6,07 |
| 14-15 | Bertha Liv Bergstað / Hringjari frá Efri-Fitjum | 6,03 |
| 14-15 | Greta Berglind Jakobsdóttir / Þáttur frá Miðsitju | 6,03 |
| 16-17 | Ögn H. Kristín Guðmundsdóttir / Heiður frá Skíðbakka I | 5,97 |
| 16-17 | Erla Rán Róbertsdóttir / Greipur frá Haukadal 2 | 5,97 |
| 18 | Álfheiður Þóra Ágústsdóttir / Gammur frá Ósabakka 2 | 5,90 |
| 19-20 | Sigríður Fjóla Aradóttir / Von frá Borgarnesi | 5,83 |
| 19-20 | Elísabet Líf Sigvaldadóttir / Þyrping frá Feti | 5,83 |
| 21 | Elísabet Benediktsdóttir / Vorsól frá Mosfellsbæ | 5,70 |
| 22 | Viktoría Huld Hannesdóttir / Rúbín frá Ási 2 | 5,63 |
| 23 | Fríða Hildur Steinarsdóttir / Þyrnir frá Enni | 5,50 |
| 24 | Ísabella Helga Játvarðsdóttir / Lávarður frá Ekru | 5,43 |
| 25 | Kristín Eir Hauksdóttir Holake / Abel frá Skáney | 5,40 |
| 26 | Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir / Gustur frá Efri-Þverá | 5,20 |
| 27 | Bertha Liv Bergstað / Sporður frá Ytra-Dalsgerði | 5,13 |
| 28 | Jón Guðmundsson / Litla-Brúnka frá Ásmundarstöðum 3 | 5,07 |
| 29 | Sigríður Elva Elvarsdóttir / Snælda frá Syðra-Skörðugili | 5,00 |
| 30 | Líf Einarsdóttir Isenbuegel / Frami frá Efri-Þverá | 4,93 |
| 31 | Gabríela Máney Gunnarsdóttir / Jarl frá Steinnesi | 4,90 |
| 32 | Hilmir Páll Hannesson / Goði frá Oddgeirshólum 4 | 4,87 |
| 33-34 | Ylva Sól Agnarsdóttir / Sif frá Garðshorni á Þelamörk | 4,47 |
| 33-34 | Hjördís Antonía Andradóttir / Astor frá Austurási | 4,47 |
| 35 | Líf Einarsdóttir Isenbuegel / Gustur frá Eylandi | 4,10 |
| 36 | Karítas Ylfa Davíðsdóttir / Sæla frá Kröggólfsstöðum | 3,93 |
Hæst dæmdi hestur í heimi