Katla og Sigurpáll með hæstu einkunn í gæðingakeppni barnaflokki
Katla Dís Hannesdóttir og Sigurpáll frá Varmalandi. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Dagskrá Íslandsmóts barna og unglinga fer nú fram á félagssvæði Sleipnis á Brávöllum á Selfossi. Í gær fór fram forkeppni í hinum ýmsu keppnisgreinum og áfram skal haldið í dag, klukkan 09:30 byrjar fyrsta keppnisgrein dagsins sem er gæðingaskeið. Hægt er að horfa á mótið í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagskrá og niðurstöður eru þá aðgengilegar í snjallforriti HorseDay.
Á íslandsmóti barna og unglinga er bæði keppt í gæðinga- og íþróttakeppni. Síðasta keppnisgrein gærdagsins var forkeppni í barnaflokki í gæðingakeppni þar sem 43 knapar voru skráðir til leiks. Efst að lokinni forkeppni er Katla Dís Hannesdóttir á Sigurpáli frá Varmalandi með 8,69 í einkunn. Annar er Þorgeir Nói Jóhannsson á Nínu frá Áslandi með 8,65 og í þriðja sæti er Svala Björk Hlynsdóttir á Bríeti frá Auðsholtshjáleigu með 8,60. Jafn henni er Jón Guðmundsson á Pabbastelpu frá Ásmundarstöðum 3 með 8,60. Í þessari keppnisgrein fara sjö efstu knaparnir beint í A-úrslit og knapar í sæti 8.-16. í b-úrslit
Niðurstöður í gæðingakeppni barnaflokki
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Katla Dís Hannesdóttir / Sigurpáll frá Varmalandi | 8,69 |
| 2 | Þorgeir Nói Jóhannsson / Nína frá Áslandi | 8,65 |
| 3 | Svala Björk Hlynsdóttir / Bríet frá Auðsholtshjáleigu | 8,60 |
| 4 | Jón Guðmundsson / Pabbastelpa frá Ásmundarstöðum 3 | 8,60 |
| 5 | Dagmar Daníelsdóttir / Friðarrós frá Norðurey | 8,59 |
| 6 | Valdís Mist Eyjólfsdóttir / Hnota frá Þingnesi | 8,58 |
| 7 | Sigrún Freyja Einarsdóttir / Silfurtoppur frá Kópavogi | 8,56 |
| 8 | Bryanna Heaven Brynjarsdóttir / Saga frá Dalsholti | 8,55 |
| 9 | Dagur Snær Agnarsson / Barón frá Hafnarfirði | 8,52 |
| 10 | Viktoría Huld Hannesdóttir / Rúbín frá Ási 2 | 8,49 |
| 11 | Aron Einar Ólafsson / Skandall frá Varmalæk 1 | 8,49 |
| 12 | Sara Margrét Holaker Hauksdóttir / Sæld frá Skáney | 8,49 |
| 13 | Birna Rós Steinarsdóttir / Alma frá Breiðholti í Flóa | 8,48 |
| 14 | Helga Rún Sigurðardóttir / Seifur frá Brekkubæ | 8,47 |
| 15-16 | Sigurey María Eyjalínardóttir / Herkúles frá Kolsholti 2 | 8,46 |
| 15-16 | Líf Einarsdóttir Isenbuegel / Mánasteinn frá Hafnarfirði | 8,46 |
| 17 | Vilhelm Bjartur Eiríksson / Blesi frá Heysholti | 8,46 |
| 18-19 | Magdalena Ísold Andradóttir / Herdís frá Hafnarfirði | 8,45 |
| 18-19 | Alexander Þór Hjaltason / Týr frá Akranesi | 8,45 |
| 20 | Helgi Hrafn Sigvaldason / Fagur frá Kvistum | 8,44 |
| 21 | Kamilla Nótt Jónsdóttir / Tangó frá Reyrhaga | 8,44 |
| 22 | Hrafnar Freyr Leósson / Meyvant frá Álfhólum | 8,44 |
| 23 | Sigursteinn Ingi Jóhannsson / Hrynjandi frá Geysisholti | 8,43 |
| 24 | Sunna María Játvarðsdóttir / Vafi frá Hólaborg | 8,42 |
| 25 | Viðar Ingimarsson / Freyr frá Kvistum | 8,41 |
| 26-27 | Birkir Snær Sigurðsson / Laufi frá Syðri-Völlum | 8,41 |
| 26-27 | Aron Einar Ólafsson / Hrafnar frá Hvoli | 8,41 |
| 28 | Sigurey María Eyjalínardóttir / Sigurrós frá Akranesi | 8,40 |
| 29 | Karítas Ylfa Davíðsdóttir / Sigur frá Sælukoti | 8,39 |
| 30 | Aldís Emilía Magnúsdóttir / Birting frá Birkihlíð | 8,39 |
| 31 | Nadía Líf Kazberuk / Sigurey frá Flekkudal | 8,38 |
| 32 | Jóhanna Lea Hjaltadóttir / Ópera frá Hestasýn | 8,37 |
| 33 | Guðrún Lára Davíðsdóttir / Dökkvi frá Eylandi | 8,36 |
| 34 | Katrín Edda Viðarsdóttir / Kveikja frá Kvíarhóli | 8,31 |
| 35 | Eva Hrönn Ásmundsdóttir / Ester frá Mosfellsbæ | 8,27 |
| 36 | Magdalena Ísold Andradóttir / Medalía frá Hafnarfirði | 8,27 |
| 37 | Steinar Kári Guðmarsson / Veisla frá Sandhólaferju | 8,22 |
| 38 | Aryanna Nevaeh Brynjarsdóttir / Kraftur frá Laufbrekku | 8,21 |
| 39 | Hrafnhildur Þráinsdóttir / Dögun frá Grenstanga | 8,15 |
| 40 | Eva Hrönn Ásmundsdóttir / Bárður frá Litla-Dal | 8,09 |
| 41 | Elísa Rún Karlsdóttir / Jarl frá Hrafnagili | 7,68 |
| 42 | Sunna María Játvarðsdóttir / Alfa frá Margrétarhofi | 7,56 |
| 43 | Harpa Rún Sveinbjörnsdóttir / Straumur frá Víðinesi 1 | 0,00 |
Hæst dæmdi hestur í heimi