Viktor og Drottning Íslandsmeistarar í gæðingaskeiði!
Viktor Arnbro og Drottning. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Keppni á Íslandsmóti barna og unglinga hófst í dag á keppni í gæðingaskeiði í unglingaflokki og því fyrsti Íslandsmeistarinn á mótinu krýndur. Framundan er svo forkeppni í tölti bæði í unglinga- og barnaflokki en dagskrá dagsins lýkur seinni partinn á forkeppni í gæðingakeppni unglinga. Sýnt er frá mótinu á EiðfaxaTV.
Dagskrá dagsins er aðgengileg hér neðst í fréttinni og þá er hægt að fylgjast með niðurstöðum, dagskrá og fleiru á HorseDay.
Íslandsmeistari í gæðingaskeiði í unglingaflokki árið 2026 er Viktor Arnbro Þórhallsson á Drottningu frá Ysta-Gerði en hann sýndi tvo frábæra skeiðspretti og hlaut í einkunn 7,04. Í öðru sæti varð Bryndís Anna Gunnarsdóttir og Von frá Ási 1 með 6,50 í einkunn og í þriðja sæti varð Loftur Breki Hauksson á Sölva frá Stuðlum með 6,21 í einkunn.
Niðurstaða í gæðingaskeiði
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Viktor Arnbro Þórhallsson | Drottning frá Ysta-Gerði | 7,04 |
| 2 | Bryndís Anna Gunnarsdóttir | Von frá Ási 1 | 6,50 |
| 3 | Loftur Breki Hauksson | Sölvi frá Stuðlum | 6,21 |
| 4 | Sigríður Fjóla Aradóttir | Kolfreyja frá Hvítárholti | 6,04 |
| 5 | Elísabet Líf Sigvaldadóttir | Hildur frá Feti | 6,04 |
| 6 | Ögn H. Kristín Guðmundsdóttir | Dimma frá Syðri-Reykjum 3 | 5,96 |
| 7 | Unnur Rós Ármannsdóttir | Næturkráka frá Brjánsstöðum | 5,79 |
| 8 | Álfheiður Þóra Ágústsdóttir | Líf frá Vestra-Fíflholti | 5,50 |
| 9 | Róbert Darri Edwardsson | Fröken frá Ásmúla | 5,50 |
| 10 | Svava Marý Þorsteinsdóttir | Sæmd frá Syðra-Langholti | 5,33 |
| 11 | Elimar Elvarsson | Eva frá Strandarhjáleigu | 5,08 |
| 12 | Fríða Hildur Steinarsdóttir | Þyrnir frá Enni | 4,50 |
| 13 | Ísabella Helga Játvarðsdóttir | Lávarður frá Ekru | 4,50 |
| 14 | Alexander Þór Hjaltason | Gnýr frá Gunnarsholti | 4,13 |
| 15 | Arnór Darri Kristinsson | Ófeig frá Syðra-Holti | 3,96 |
| 16 | Ragnar Dagur Jóhannsson | Urla frá Pulu | 3,83 |
| 17 | Helga Rún Sigurðardóttir | Lás frá Jarðbrú 1 | 3,71 |
| 18 | Kristín Rut Jónsdóttir | Ása frá Fremri-Gufudal | 3,21 |
| 19 | Elsa Kristín Grétarsdóttir | Hrund frá Hólaborg | 3,17 |
| 20 | Kristín Eir Hauksdóttir Holake | Þórfinnur frá Skáney | 3,04 |
| 21 | Anna Sigríður Erlendsdóttir | Venus frá Skarði | 2,92 |
| 22 | Greta Berglind Jakobsdóttir | Þáttur frá Miðsitju | 2,67 |
| 23 | Una Björt Valgarðsdóttir | Gígja frá Tungu | 2,67 |
| 24 | Elísabet Benediktsdóttir | Óðinn frá Silfurmýri | 2,00 |
| 25 | Helgi Björn Guðjónsson | Vissa frá Jarðbrú | 1,33 |
| 26 | Viktor Leifsson | Sæmd frá Eylandi | 1,17 |
| 27 | Bertha Liv Bergstað | Glossi frá Ytra-Dalsgerði | 1,00 |
| 28 | Ylva Sól Agnarsdóttir | Erla frá Feti | 0,75 |
| 29 | Gabríela Máney Gunnarsdóttir | Jarl frá Steinnesi | 0,67 |
| 30 | Viktoría Huld Hannesdóttir | Dama frá Varmalandi | 0,00 |
Dagskrá Föstudagur 24. júli
09:30 Gæðingaskeið
11:00 Hlé
11:30 Tölt T1 Unglingaflokkur 1-14
12:30 Matur
13:15 Tölt T1 Unglingaflokkur 15-40
15:15 Vallarhlé
15:30 Tölt T3 Barnaflokkur
16:40 Gæðingaflokkur Unglinga 1-17
18:10 Matur
18:50 Gæðingaflokkur Unglinga 18-40
20:50 Dagskrálok
Hæst dæmdi hestur í heimi