Aron Einar og Hilmir Páll keppa til A-úrslita í gæðingakeppni

  • 25. júlí 2026
  • Fréttir

Aron Einar sigurvegari B-úrslita í barnaflokki við hlið hans standa Berglind Sveinsdóttir formaður Sleipnis og Anna Björg Níelsdóttir gjaldkeri Sleipnis. Ljósmyndir: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka

Niðurstöður úr B-úrslitum í gæðingakeppni á Íslandsmóti barna og unglinga

Í dag, laugardaginn 25.júlí, er sannkallaður B-úrslita dagur á Íslandsmóti barna og unglinga því B-úrslit í hinum ýmsu keppnisgreinum eru framan af degi en keppnisdagskrá lýkur svo með 100 metra skeiði sem hefst klukkan 17:30. Mótið er sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagskrá dagsins er aðgengileg hér neðar í fréttinni en einnig er allar upplýsingar um mótið að finna á HorseDay og facebook síðu viðburðarins.

Fyrir hádegi í dag fóru fram B-úrslit í gæðingakeppni bæði í barna- og unglingaflokki.

Í barnaflokki var það Aron Einar Ólafsson sem hæsta einkunn hlaut, 8,72. Hestur hans er Skandall frá Varmalæk og mæta þeir því til A-úrslita á morgun. Í unglingaflokki vann sér þátttökurétt í A-úrslitum Hilmir Páll Hannesson á Grími frá Skógarási en jöfn honum var Jórunn Edda Antonsdóttir á Jaðri frá Hvolsvelli bæði með 8,64, en Hilmir Páll var hærri á þriðja aukastaf.

*Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um sigur Hilmis í B-úrslitum í unglingaflokki
Niðurstaða B-úrslita í barnaflokki
Sæti Keppandi Heildareinkunn
8 Aron Einar Ólafsson / Skandall frá Varmalæk 1 8,72
9 Líf Einarsdóttir Isenbuegel / Mánasteinn frá Hafnarfirði 8,65
10 Bryanna Heaven Brynjarsdóttir / Saga frá Dalsholti 8,61
11 Dagur Snær Agnarsson / Barón frá Hafnarfirði 8,57
12 Viktoría Huld Hannesdóttir / Rúbín frá Ási 2 8,55
13 Sara Margrét Holaker Hauksdóttir / Sæld frá Skáney 8,51
14 Birna Rós Steinarsdóttir / Alma frá Breiðholti í Flóa 8,48
15 Sigurey María Eyjalínardóttir / Herkúles frá Kolsholti 2 8,47

B-úrslitaknapar í barnaflokki á baki hestum sínum

Niðurstaða B-úrslita í unglingaflokki
Sæti Keppandi Heildareinkunn
8-9 Hilmir Páll Hannesson / Grímur frá Skógarási 8,64
8-9 Jórunn Edda Antonsdóttir / Jaðar frá Hvolsvelli 8,64
10 Sigríður Fjóla Aradóttir / Meistari frá Hafnarfirði 8,62
11 Hjördís Halla Þórarinsdóttir / Höfn frá Kagaðarhóli 8,60
12 Aron Dyröy Guðmundsson / Ísafold frá Kirkjubæ 8,59
13 Elísabet Emma Björnsdóttir / Aðgát frá Víðivöllum fremri 8,56
14 Hjördís Antonía Andradóttir / Gjöf frá Brenniborg 8,55
15 Hrefna Kristín Ómarsdóttir / Dáðhugi frá Álfhólum 8,52

B-úrslitaknapar í unglingaflokki á baki hestum sínum

Laugardagur 25. júlí

10:00 B-úrslit Barnaflokkur Gæðinga
10:40 B-úrslit Unglingaflokkur Gæðinga
11:20 Matur
12:00 B-úrslit V2 Barnaflokkur
12:30 B-úrslit V1 Unglingaflokkur
13:00 B-úrslit Gæðingatölt Barnaflokkur
13:30 B-úrslit Gæðingatölt Unglingaflokkur
14:00 B-úrslit T4 Barnaflokkur
14:50 Kaffihlé
15:15 B-úrslit T4 Unglingaflokkur
15:40 B-úrslit F2 Unglingaflokkur
16:15 B-úrslit T3 Barnaflokkur
16:40 B-úrslit Tölt T1 Unglingaflokkur
17:10 Kaffihlé
17:30 100 m skeið
18:15 Grill fyrir keppendur

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link