Jóhanna og Embla sigurvegarar B-úrslita í fjórgangi

  • 25. júlí 2026
  • Fréttir

Jóhanna Sigurlilja kampakát með sigur í B-úrslitum. Ljósmyndir: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka

Niðurstöður úr b-úrslitum í fjórgangi

dag, laugardaginn 25.júlí, er sannkallaður B-úrslita dagur á Íslandsmóti barna og unglinga því B-úrslit í hinum ýmsu keppnisgreinum eru framan af degi en keppnisdagskrá lýkur svo með 100 metra skeiði sem hefst klukkan 17:30. Mótið er sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagskrá dagsins er aðgengileg hér neðar í fréttinni en einnig er allar upplýsingar um mótið að finna á HorseDay og facebook síðu viðburðarins.

Í b-úrslitum í fjórgangi unglinga var það Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir á Radíusi frá Hofsstöðum sem sigraði keppinauta sína og tryggði sig inn í A-úrslita á morgun með 6,97 í einkunn. Í barnaflokki er það Embla Sirén Matthíasdóttir sem mætir til A-úrslita eftir sigur í b-úrslitum á Flugu frá Garðabæ með 6,67 í einkunn.

Niðurstaða B-úrslita í fjórgangi (V1) unglinga
Sæti Keppandi Heildareinkunn
6 Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir / Radíus frá Hofsstöðum 6,97
7 Ragnar Dagur Jóhannsson / Eiðfaxi frá Lækjarbotnum 6,70
8-9 Gabríel Liljendal Friðfinnsson / Litríkur frá Miðengi 6,60
8-9 Bertha Liv Bergstað / Hólmi frá Kaldbak 6,60
10 Emma Rún Arnardóttir / Gletta frá Eystra-Fróðholti 6,27
Niðurstaða B-úrslita í fjórgangi (v2) barnaflokki
Sæti Keppandi Heildareinkunn
6 Embla Sirén Matthíasdóttir / Fluga frá Garðabæ 6,67
7 Eyvör Sveinbjörnsdóttir / Hagur frá Hofi á Höfðaströnd 6,53
8 Jón Guðmundsson / Rós frá Blönduósi 6,50
9 Þorgeir Nói Jóhannsson / Hnokki frá Áslandi 6,47
10 Svala Björk Hlynsdóttir / Sigur frá Auðsholtshjáleigu 6,30

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link