Reiðhöll í Mosfellsbæ fylltis af reyk

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Varð að rýma hesthúsið

„Reiðhöllin og hesthúsið fylltist af reyk. Við þorðum ekki annað en að rýma húsið og fara með hrossin í nærliggjandi hesthús,“ segir Alexander Hrafnkelsson, hestamaður í Mosfellsbæ. Hann á reiðhöll og hesthús nærri hesthúsinu sem brann í gærkvöldi. 

„Það er ótrúlegt hvað þetta gerðist hratt. Ólöf konan mín varð vör við lögreglu- og skjúkrabílana í gærkvöldi. Við búum þarna skammt frá. Þegar við komum niður í hesthúsahverfið var kominn mikill eldur í húsið og reykinn lagði yfir hesthúsið okkar undan rokinu. Ég lokaði öllum lúgum og gluggum, en það þýddi ekki neitt. Allt fylltist af reyk. Hross eru viðkvæm fyrir reyk, þannig að við þorðum ekki annað en rýma húsið. Við erum með átta graðhesta, þannig að það var ekkert um það að ræða að hleypa hrossunum út í gerði. En sem betur fer eru mörg auð hesthús í hverfinu ennþá og við fengum að setja þau í hús neðar í hverfinu, þangað sem reykurinn náði ekki til.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link