Skráning stendur yfir á opna WR mót Sleipnis
Opna WR Íþróttamót Sleipnis verður haldið á Brávöllum, Selfossi dagana 10.-13. maí.
Lokaútkall til að skrá sig á mótið er í kvöld 8. maí milli kl. 20-22 í símum 8494505 – 8464582 – 6648001.
Við skráningu þarf að koma fram IS númer hests og kennitala knapa og upp á hvora höndina knapi vill ríða.
Keppt verður í öllum hefðbundnum keppnisgreinum:
- Fullorðinsflokkur : T1,tölt-V1,fjórg. -F1,fimmg. Einn inni á vellinum í einu
- PP1, gæðingask. 150-250 og 100m skeið.
- T3, tölt V2-fjórg. og T4 slaktaumatölt en þar ríða þrír inná í forkeppni og er stjórnað af þul.
- Ungmennaflokkur :T3,V2og F2
- Unglingaflokkur : T3,V2 og F2
- Barnaflokkur : T3 og V2
Mótið hefst á fimmtudagskveldi með skeiðleikum.
Þátttökugjald per grein er:
- 4000 kr. fyrir utanfélagsmenn
- 3500 kr. fyrir félagsmenn í Sleipni
- 2500 kr. fyrir börn og unglinga
Greiðsla þarf að berast fyrir kl: 14 miðvikudaginn 9.mai annars fellur keppandi sjálfkrafa út.
Reikningsnúmer:0152-26-100174
Kennitala: 590583-0309
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH