WR Suðurlandsmót
WR Suðurlandsmót verður haldið á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 22-24 ágúst. Keppt verður í eftirfarandi flokkum.
Meistaraflokkur er opinn öllum, enga lágmarkseinkunn þarf til að keppa þar.
Meistaraflokkur – tölt T1, tölt T2, fjórgangur V1, fimmgangur F1, gæðingaskeið.
Opinnflokkur 1 – tölt T3, tölt T2(þrír inná í einu T4), fjórgangur V2, fimmgangur F2.
Opinnflokkur 2 – tölt T3, tölt T2(þrír inná í einu T4), fjórgangur V2, fimmgangur F2, gæðingaskeið.
100m skeið, 150m skeið, 250m skeið.
Skráningargjald er 5000kr í allargreinar nema skeiðgreinar er 3000kr.
Skráning fer fram á heimasíðu Geysis hmfgeysir.is undir hnappnum skráning. Skráningargjald greiðist um leið og skráð er. Þeir sem velja að greiða með millifærslu muna að ýta á staðfesta til að skráningin staðfestist. Skráningu lýkur þriðjudaginn 19.ágúst kl 23:59.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH