Fyrirlestur og járninganámskeið

  • 20. janúar 2012
  • Fréttir

Ingimar Sveinsson. Mynd/dalli.is

Fyrirlestur og járninganámskeið

Ingimar Sveinsson flytur fyrirlestur um meðferð og fóðrun hrossa í Félagsheimili Fáks miðvikudaginn þann 25.janúar 2012. Fyrirlesturinn byrjar kl. 20:00 – 22:00. Frítt inn og allir velkomnir.  Kaffi í boði hússins.

 
Fákur auglýsir einnig járninganámskeið með Sigurði Torfa bæði fyrir byrjendur og vana járningamenn.  Kennt er helgina 27. – 29.janúar í anddyrinu í suðurenda í Reiðhöllinni í Víðidal.  Námskeiðinu er skipt upp í 2 hópa (byrjendur og vanir),  12 klst fyrir hvorn hóp.
 
Námskeiðið byrjar með bóklegum tíma í Reiðhöllinni í Víðidal, í anddyrinu,  föstudaginn 27. jan kl. 18:00 – 22:00. Bóklegi tíminn er sameiginlegur fyrir báða hópana. Fákur býður þátttakendum upp á pizzu á föstudagskvöldinu. Á laugardeginum og sunnudeginum er kennt frá 9:00 til 13:00 fyrir byrjendur og frá kl. 14:00 til 18:00  fyrir vana.  Hámark er 6 í hóp.  Verð kr. 20.000.  
 
Skráning á [email protected] og skal greiða námskeiðsgjald á skrifstofu Fáks eða með símgreiðslu áður en námskeiðið byrjar. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link