„Afskaplega heiðarleg og jákvæð í allri hugsun“
Ævar og Tíbrá í verðlaunaafhendingu á LM2026. Ljósmynd: KollaGr
Alls voru sýndar 81 fjögurra vetra hryssur á árinu í fullnaðardómi. Meðaltal aðaleinkunnar þeirra í hæsta dómi er 8,01 og alls hlutu 46 hryssur 8,00 eða hærra í aðaleinkunn og 1. verðlaun.
Hæst dæmda hryssa ársins í þessum aldursflokki er Tíbrá frá Eystri-Hól sem hlaut í aðaleinkunn 8,52 á Landsmótinu á Hólum og stóð þar efst í sínum flokki. Hún hlaut fyrir sköpulag 8,09, fyrir hæfileika 8,75 og í aðaleinkunn 8,52. Ber þar hæst einkunnin 9,5 fyrir bæði tölt og samstarfsvilja.
Ræktendur og eigendur Tíbráar eru Hestar ehf. en þar að baki standa þeir Halldór Hróar Sigurðsson, Sigurður Halldórsson, Ævar Örn Guðjónsson og fjölskyldur þeirra. Ævar Örn sýndi Tíbrá og sló Eiðfaxi á þráðinn til hans til að fræðast ögn meira um hryssuna og hann svaraði fyrir hönd eigenda með glöðu geði.
Tíbrá er undan Lexusi frá Vatnsleysu, syni Hróðs frá Refsstöðum og Lýdíu frá Vatnsleysu, og móðir hennar er Tanja frá Eystri-Hól en sú er undan Álmi frá Skjálg og Oktavíu frá Feti.
„Þetta var fyrir það fyrsta afskaplega þægileg lending, þar sem hesturinn og hryssan voru á sama hlaðinu. Við höfum alltaf staðið með Lexusi og flestar óskyldar og meira að segja stundum skyldar hryssur í okkar eigu hefur verið haldið undir hann. Því til sönnunar eru til fimm alsystkini undan Tönju og Lexusi. Það skemmdi ekki fyrir að pörun með Lexusi og Oktavíu frá Feti hafði sýnt sig að virkaði m.a. í móðursystur Tíbráar, henni Lýdíu frá Eystri-Hól. Þá var Tanja sjálf mikill gæðingur en hvað sköpulag varðar skorti hana bæði á fótahæð og var einnig fremur langvaxin en Lexus gefur framhá og frekar stuttvaxin hross,“ segir Ævar Örn spurður um tilhögun pörunar þessara hrossa.
„Það er viðkoman í Lexusi og hans afkvæmum sem okkur fellur svo vel við. Það er kannski erfitt að útskýra hvað átt er við með því en ég held að það sé léttleiki og næmni sem finnast í ríkulegum mæli í honum og afkvæmum hans, og þá kosti hafði Tanja líka. Ég má til með að taka það fram að bæði Lexus og Tanja eru afar þæg og heiðarleg, en oft þykir mér fólk taka því þannig að ef talað er um létt og næm hross henti þau ekki fyrir breiðan hóp reiðmanna, á meðan letingjar þykja oft á tíðum þægir. Þá er eitt enn sem mig langar að nefna, að Lexus hefur alltaf verið afar frjósamur og það finnst mér mikilvægur þáttur að varðveita í búfjárrækt.“
Spurður nánar út í nafngiftina og hvort einhver sérstök saga liggi þar að baki segir Ævar svo ekki vera: „Það var ekkert mikil pæling á bak við það, held ég. Bókstafurinn T réð sennilega mestu, en öll afkvæmi Tönju hafa byrjað á þeim staf. Þetta var ekkert sérstaklega tekið fyrir á stjórnarfundi, heldur var það Halldór Hróar sem hefur ráðið ferðinni í þessum efnum. Það er engin algild regla hjá okkur en við styðjumst samt mjög oft við það að gefa afkvæmum nafn sem byrjar á sama bókstaf og nafn móðurinnar.“

í verðlaunaafhendingu á Landsmóti 2026. F.v. Ólafur Þórisson formaður Búgreinardeildar hrossabænda, Olil Amble sem veitti Álfadísar bikarinn í flokki 4.vetra hryssa. Þá ræktendurnir Halldór Hróar, Sigurður Halldórsson og Ævar Örn sem situr á Tíbrá. Ljósmynd: KollaGr
Fínleg og forvitin í uppeldi
„Tíbrá var frekar fínleg og fríð í uppvextinum, spök og forvitin en samt alltaf vakandi,“ útskýrir Ævar. „Ef ég á að lýsa henni í uppeldinu þá var hún ósköp venjuleg hvað hreyfingar varðar – bara svona verulega frítt og álitlegt tryppi. Það var í raun ekkert sem benti til þess strax að þarna væri eitthvað ofurtryppi á ferðinni frekar en annað.“
Bætti við sig frá degi til dags
Það var svo þegar kom að frumtamningu sem hæfileikarnir fóru að skila sér af alvöru.
„Í frumtamningunni byrjaði hún strax óskaplega vel. Hún hreyfði sig fallega þegar hún var komin á skeifur og virkaði afskaplega heiðarleg og jákvæð í allri hugsun; hún var mjög fljót að læra og sérlega auðtamin. Eftir frumtamningu fékk hún gott frí. Við klárum að temja þessi tryppi snemma hausts og hún hvíldi svo október, nóvember og fram í miðjan desember. Svo var hún járnuð og byrjað að ríða henni um jólin. Frá þeim tímapunkti bætti hún einfaldlega við sig frá degi til dags – og hélt í raun áfram að vaxa og bæta sig alveg þangað til hnakkurinn var tekinn af henni eftir verðlaunaafhendinguna á Landsmóti.“
Aðspurður hvernig tilfinning það hafi verið að fylgja hryssunni alla leið á toppinn á Hólum leynir stoltið sér ekki. „Þessir dagar á Landsmótinu urðu algjörir dýrðardagar og auðvitað gekk þetta allt saman framar öllum vonum. Þegar maður lítur til baka var þetta ofsalega skemmtilegt ferli og við erum gríðarlega stolt af því að hafa ræktað og eiga svona góðan grip. Þegar maður hugsar um alla vegferðina kemur óneitanlega breitt sæluglott á smettið,“ segir Ævar.

Ævar og Tíbrá á LM2016 Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir
Haldið undir Safír
Framtíðarplönin eru spennandi fyrir þessa ungu gæðingshryssu, bæði í kynbótabrautinni og í ræktuninni.
„Henni var haldið undir Safír frá Laugardælum í sumar en okkur líkaði framganga hans á mótinu afar vel. Það getur vel verið að henni verði ekkert haldið næsta vor. Það var dálítið broslegt í verðlaunaafhendingunni þegar við Vignir [Siggeirsson] vorum að ríða hlið við hlið út brautina; þá spurði ég Vigga hvað hann ætlaði að gera við sína hryssu. Hann nefndi að hann væri að gæla við að taka úr henni eitt folald og stefna svo á næsta Landsmót. Ætli hann eigi þannig ekki sinn þátt í þeirri hugmynd hjá okkur,“ segir Ævar Örn Guðjónsson að lokum.
10 hæst dæmdu 4.vetra hryssur ársins 2026
| Nafn | Aðaleinkunn |
| Tíbrá frá Eystri-Hól | 8,52 |
| Hrefna frá Hemlu II | 8,47 |
| Tónlist frá Sumarliðabæ 2 | 8,43 |
| Happadís frá Brekku | 8,41 |
| Milla frá Skúfsstöðum | 8,39 |
| Fjara frá Karlshaga | 8,37 |
| Þórkatla frá Feti | 8,37 |
| Gleymmérei frá Árbæ | 8,34 |
| Lukkudís frá Litlalandi Ásahreppi | 8,33 |
| Álfhildur frá Bergi | 8,28 |
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV