Kynningarfundur Meistaradeildar ungmenna í Sörla á mánudag
Kynningarfundur fyrir næsta keppnistímabil Meistaradeildar ungmenna fer fram mánudaginn 14. september kl. 18:00 í veislusal Hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði.
Á fundinum verður starfsemi og fyrirkomulag deildarinnar kynnt fyrir komandi tímabil. Lagt er upp með sambærilegt fyrirkomulag og á síðasta tímabili:
- Tvö mót í Spretti
- Tvö mót í Sörla
- Eitt mót í Hörði
- Skeiðgreinar utandyra
Óskað eftir nýju fólki í stjórn
Auk kynningar á keppnisfyrirkomulaginu er kallað eftir nýjum liðsauka í stjórn deildarinnar svo tryggja megi áframhaldandi öflugt starf hennar.
Stjórnendur hvetja alla knapa sem velta fyrir sér þátttöku á næsta tímabili, ásamt aðstandendum, liðsstjórum og öðrum áhugamönnum um hestaíþróttir ungs fólks, til að mæta, kynna sér málin og leggja deildinni lið.
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Nagli og Flaumur unnu A og B flokkinn