Vel heppnuð sýnikennsla Guðmars

  • 9. janúar 2012
  • Fréttir
Vel heppnuð sýnikennsla Guðmars

Húsfyllir var í reiðhöllinni Hamraenda (Nýja Gusti) hjá Ríkharði Flemming og Þór Bjarkar þegar Guðmar Þór Pétursson, reiðkennari, hélt þar sýnikennslu fimmtudaginn 5. janúar sl.

„Góður rómur var gerður að sýningunni og hafði Guðmar margt gott fram að færa. Guðmar talaði m.a. um hugtakið „eftir fótunum fellur höfuðið“ þar sem átt er við að mótun höfuðburðar verður til aftan frá, eða á upptök sín í afturfótum eða lend hestsins. Einnig talaði Guðmar um mikilvægi þess að hesturinn haldi framhugsun í öllum þeim verkefnum sem honum eru ætluð og að knapinn þurfi ávallt að hafa næma taumhönd og passa að loka hestinn ekki inn í læstu þvinguðu formi með báðar hendur fastar. Það skapi innilokunarkennd hjá hestinum, kalli á flóttaviðbrögð og geti aldrei, nema í „besta“ falli, myndað þvingaðan eða falskan höfuðburð. Margt annað gott bar á góma hjá Guðmari sem ekki verður talið upp hér, en fjölmargir áhorfendur höfðu gagn og gaman af sýningunni sem stóð öllum til boða endurgjaldslaust.

Þakka má fyrir þetta góða framtak Guðmars og gaman til þess að vita að það sé að færast líf í Gustara og Andvaramenn á nýju svæði og nýju ári. Guðmar Þór býður upp á kennslu í reiðhöllinni við Hamraenda á þriðjudögum og fimmtudögum nú í janúar og geta áhugasamir haft samband við Guðmar í síma 896-6726 netfang [email protected] eða Ríkharð í síma 896-1066 netfang [email protected].

Einnig er fyrirhugað helgarnámskeið með Guðmari helgina 21.-22. janúar sem verður nánar auglýst síðar,“ segir í frétt frá þeim félögum í Hamraenda. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link