Diddi og Jarl glæsilegir sigurvegarar B-úrslita

  • 29. júní 2012
  • Fréttir
Diddi og Jarl glæsilegir sigurvegarar B-úrslita

Sigurbjörn Bárðarson er í miklu stuði á þessu landsmóti, enda á heimavelli. Hann gerði sér lítið fyrir og tryggði sér sæti í A-úrslitum í tölti með því að sigra B-úrslitin rétt í þessu.

 
Keppandi: Hægt tölt/ Hraðabreytingar / Hratt tölt / aðaleinkunn
 
6. Jarl frá Mið-Fossum og Sigurbjörn Bárðarson (Fákur): 9,0 – 8,0 – 7,83 – 8,28
7. Háfeti frá Úlfsstöðum og Eyjólfur Þorsteinsson (Sörli): 7,5 – 7,83 – 8,83 – 8,06
8. Stormur frá Herríðarhóli og Árni Björn Pálsson (Fákur): 8,0 – 7,5 -8,33 – 7,94
9. Blæja frá Lýtingsstöðum og Sigurður Sigurðarson (Geysir): 7,5 – 7,67 – 8,50- 7,89
10. Vornótt frá Hólabrekku og  Viðar Ingólfsson (Fákur): 7,5 – 7,83 – 6,67 – 7,33
 
A-úrslitin í tölti fara fram á morgun kl. 20.15 en þá munu Sigurbjörn og Jarl etja kappi við ekki minni gæðinga en Smyril frá Hrísum, Dívu frá Álfhólum, Árborg frá Miðey, Óskar frá Blesastöðum 1A svo ekki sé minnst á titilverjandann Ölfu frá Blesastöðum 1A.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link