Ríðandi í skólann í roki og rigningu
Alexander og Glúmur og Rannveig Gígja og Þytur leggja af stað í skólann í morgun
Hún fer nefnilega á hestbaki í Laugalandsskóla í Holtum ásamt góðum félögum, og veðrið fær ekki stoppað þau. Sagt var frá þessu á vef Sunnlenska.is í morgun, en Eiðfaxi heyrði í móður Rannveigar Gígju, Jóhönnu Þorbjörgu Magnúsdóttur, þegar að Rannveig og vinur hennar Alexander Ari Kazberuk riðu úr hlaði í morgun.
Láta skítarigningu ekki á sig fá
Veðrið lék ekki beint við ungu knapana sem lögðu af stað í skólann í morgun en það virtist ekki hafa nein áhrif á skólasóknina hjá ungu knöpunum.
„Þau eru að leggja á núna í leiðinda rigningu og roki,“ sagði Jóhanna Þorbjörg í samtali við Eiðfaxa í morgun um leið og hún fylgdi krökkunum af stað. Að þessu sinni riðu Rannveig Gígja og Alexander vinur hennar saman í skólann, en þau voru á heimaræktuðum hrossum úr sveitinni: Alexander sat Glúm frá Hrólfsstaðahelli og Gígja var á Þyt frá Gíslholti.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gígja fer á hestbaki í skólann, en leiðin frá heimilinu í Köldukinn að Laugalandi er um fimm kílómetrar.
„Gígja hefur áður farið ríðandi á Laugaland en þá var hún í leikskólanum og mamman þurfti að koma með. Nú leggur hún sjálf á hestinn og ríður ein út og því var nokkuð auðsótt að skella sér ríðandi,“ sagði Jóhanna við Sunnlenska.

Rannveig Gígja og Margrét Aþena komnar á áfangastað í Laugalandsskóla á dögunum
Sumarlesturinn var Stóðhestabókin
Brennandi hestaáhugi Gígju nær þó langt út fyrir það að fara eingöngu ríðandi í skólann, en hún byrjaði að sitja hest laus í taumi aðeins fjögurra ára gömul og hefur mikinn áhuga á ræktun.
„Til gamans má nefna að hún eyddi sumrinu í að lesa Stóðhestabók Eiðfaxa og getur þulið upp einkunnir fyrir gangtegundir á fjölmörgum hrossum, enda hélt hún sjálf hryssu í sumar,“ segir Jóhanna kímin. „Sumarlesturinn var því um hross og aftur hross! Svo tekur skólinn á móti henni ríðandi núna á haustdögum og þessu er því skemmtilega blandað saman. Nám er nefnilega aðeins skemmtilegra ef við höfum hestana með í jöfnunni – eða það finnst minni konu allavega.“
Gæðingar og góðir vinir
Hestakosturinn hjá krökkunum er fjölbreyttur og traustur. Aðalhestur Gígju er hinn 16 vetra gamli Hvinur frá Ægissíðu, sem hún fær að láni hjá vinkonum sínum Heiðdísi og Bryndísi. Alexander hefur einnig riðið gæðingnum Spaða, sem amma hans heitin átti, og þá slóst vinkonan Margrét Aþena í för á dögunum þegar Gígja lánaði henni Þyt frá Gíslholti.
Uppátækið vekur mikla lukku meðal skólafélaganna og er vel hugsað um ferfætlingana á meðan kennsla fer fram. Hestarnir bíða í gerði við veginn og nýtir Gígja frímínúturnar í að líta eftir þeim og færa þeim ferskt vatn í fötu.
Aðspurð um framhaldið segir Jóhanna að áhuginn sé óbilandi: „Hún hefur farið ríðandi í rigningu, roki, sól og logni og sennilega verður það bara myrkrið sem mun stoppa hana þegar líður á haustið.“

Riðið úr hlaði með skólatöskurnar á bakinu
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Nagli og Flaumur unnu A og B flokkinn