Höfðinginn Álfur frá Selfossi er allur

  • 11. september 2026
  • Fréttir

Álfur og Erlingur Erlingsson á Landsmóti árið 2006 í 4.vetra flokki stóðhesta

Skilur eftir sig stóran ættboga

Hinn merkilegi stóðhestur Álfur frá Selfossi var felldur í nótt, 24 vetra gamall að aldri. Hann er einn atkvæðamesti stóðhestur þessarar aldar og hefur sett svip sinn á ræktun íslenska hestsins svo um munar.

Erfðaframlag Álfs í íslenska hrossastofninum er mikið og mun vafalaust halda áfram að ávaxta sig eftir því sem árin líða. Hann á nú 986 skráð afkvæmi í WorldFeng og hafa 306 þeirra mætt til kynbótadóms. Aðeins faðir Álfs, Orri frá Þúfu í Landeyjum, á fleiri afkvæmi sýnd í kynbótadómi. Þá hefur fjöldinn allur af afkvæmum og afkomendum hans gert það gott á keppnisbrautinni og í áframhaldandi ræktun.

Undan yfirburðahrossum

Álfur er undan áðurnefndum Orra frá Þúfu og ættmóðurinni og gæðingnum Álfadísi frá Selfossi. Það er því óhætt að segja að tilkoma hans í heiminn hafi strax vakið athygli hrossaræktenda, þegar þessi tvö yfirburðahross voru leidd saman. Enda var það ekki í eina skiptið sem svo var gert því Álfur á þrjú alsystkini sem öll eru einnig afrekshross það eru þau Álffinnur, Álfhildur og Álfgrímur. Ræktandi Álfs er Olil Amble en eigandi hans er Christina Lund.

Farsælt samstarf á brautinni

Erlingur Erlingsson annaðist tamningu, þjálfun og sýningar á Álfi af mikilli farsæld og muna margir eftir glæsilegu samspili þeirra. Þeir komu fyrst fram þegar Álfur var fjögurra vetra gamall og hlaut hann þá 7,98 fyrir sköpulag og 8,18 fyrir hæfileika, þar á meðal 9,0 fyrir tölt, brokk og fegurð í reið.Hæstan dóm í kynbótasýningu hlaut hann sex vetra gamall á Landsmótinu á Hellu árið 2008, þar sem hann hlaut m.a. 9,5 fyrir tölt, samstarfsvilja og fegurð í reið. Erlingur sagði í samtali við Eiðfaxa að hann liti ekki bara á Álf sem frábæran hest heldur viðmið fyrir geðslagi og samstarfsvilja, hann hafi verið stórmerkileg skepna og þeirra vinátta hafi verið mikil.

Yngsti handhafi Sleipnisbikarsins

Álfur hlaut 1. verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti 2011 og stóð svo efstur heiðursverðlaunahesta á Landsmóti árið 2012, þá einungis 10 vetra gamall. Er hann yngsti handhafi Sleipnisbikarsins fræga frá upphafi veitinga þess bikars.

Í umsögn dómsorða um afkvæmi hans var honum lýst á eftirfarandi hátt:

„Álfur gefur fríð og reist hross. Afkvæmin eru bráðviljug og samstarfsfús og fara frábærlega vel með háum fótaburði.“

Á Landsmóti árið 2012 þegar Álfur hlaut heiðursverðlaun og Sleipnisbikarinn. Christina Lund situr Álf og Olil Amble dóttur hans Vestu frá Hellubæ Ljósmynd: Jens Einarsson

Takk fyrir að ég fékk að vera þín manneskja“

Christina Lund, eigandi Álfs, birti hugnæma kveðju til hestsins á Facebook-síðu sinni nú í dag þar sem hún minnist hans með miklum hlýhug. Hún segir hann hafa átt langt og heilbrigt líf sem hafi því miður endað eftir stutt veikindi og fylgikvilla nú í haust.

„Hann hefur fylgt mér í 24 ár, frá vöggu til grafar ef hægt er að segja það um hesta. Ég hef aldrei kynnst öðrum eins hesti,“ skrifar Christina og lýsir Álfi sem einstökum hesti með mikla greind og sterka nærveru. Hún segir hann hafa kennt sér mikið, bæði um hestamennsku og hesta almennt, og opnað dyr að nýjum vináttuböndum víðs vegar um Evrópu.

Þótt hesthúsið sé nú tómlegt kveðst Christina ólýsanlega þakklát fyrir að hafa fengið að eiga slíkan hest og finnur hún huggun í þeim fjölmörgu afkvæmum sem hann lætur eftir sig, þar á meðal mörgum af hans bestu dætrum sem hún á sjálf.

Að lokum kveður hún stóðhestinn merka með þessum orðum: „Akkúrat núna segi ég bara takk, Álfur. Takk fyrir að einmitt ég fékk að einhverju leyti að vera þín manneskja.“

Tekið við 1.verðlaunum fyrir afkvæmi á Landsmóti árið 2011. Ljósmynd: KollaGr

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link