Saga reiðveganna tekin saman í nýju riti
Ferðarhestar á beit í Tjarnarveri Hofsjökull í bakgrunni. Ljósmynd: Gísli Guðjónsson
Landssamband hestamannafélaga (LH) hefur birt nýtt og viðamikið rit um sögu reiðleiða á Íslandi eftir Halldór H. Halldórsson. Ritið rekur mikilvægi hestsins sem helsta samgöngutækis þjóðarinnar og tengir fornar þjóðleiðir við nútíma reiðvegakerfi hestamanna.
Íslenski hesturinn hefur frá upphafi verið lífæð samgangna hér á landi. Um aldir lágu leiðir milli byggða um heiðar, dali og hálendi og mótuðust af ferðum kynslóðanna. Nú hefur Landssamband hestamannafélaga gert þessari miklu sögu skil með útgáfu ritsins Reiðvegir Íslands – Saga reiðleiða og reiðvega frá landnámi til nútíma. Ritið er aðgengilegt öllum á vef sambandsins.
Í ritinu er farið um víðan völl og saga gömlu leiðanna rakin aftur til landnáms. Fjallað er um fornar þjóðleiðir, leiðir til Þingvalla, ferðir landpósta og helstu hálendisleiðir um Kjöl, Sprengisand og Arnarvatnsheiði. Þá er einnig gerð grein fyrir þeim miklu samgöngubreytingum sem urðu þegar bíllinn tók við af hestinum, til dæmis á Hellisheiði og við Kolviðarhól.
Nútíma reiðvegagerð og kortasjá
Sagan stoppar þó ekki í fortíðinni, heldur gerir ritið jafnframt góð skil á þróun reiðvegagerðar á síðustu áratugum. Farið er yfir skipulags- og fjármögnunarmál, skráningu reiðleiða og hvernig stafræn Kortasjá LH varð til. Verkið tengir þannig saman gömlu þjóðleiðirnar og það nútíma reiðvegakerfi sem hestamenn njóta góðs af í dag. Markmiðið með útgáfunni er að varðveita þessa mikilvægu sögu og draga fram vægi reiðvega sem stórs hluta af samgönguinnviðum og menningararfi þjóðarinnar.
Áratuga reynsla að baki ritinu
Höfundur ritsins, Halldór H. Halldórsson, þekkir málaflokkinn manna best enda hefur hann um áratugaskeið unnið að reiðvega- og samgöngumálum hestamanna. Hann var um árabil í stjórn og varastjórn LH en lét hvað mest að sér kveða sem formaður Ferða- og samgöngunefndar LH um 14 ára skeið, eða frá 2006 til 2020.
Auk þess hefur Halldór tekið virkan þátt í uppbyggingu, skráningu og stefnumótun reiðleiða á vettvangi hestamannafélaga. Sú mikla reynsla, ásamt umfangsmikilli söfnun á heimildum, kortum og ljósmyndum, myndar grunninn að þessu nýja riti.
Hægt er að nálgast ritið í heild sinni á vef LH undir flipanum Almenningsíþróttin – Reiðvegamál. Kærkominn lestur fyrir alla þá sem hafa áhuga á samgöngusögu Íslands og íslenska hestinum.