Frumtamningarnámskeið í nóvember

  • 12. október 2012
  • Fréttir
Frumtamningarnámskeið í nóvember

Hestamannafélagið Sörli og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið í nóvember 2012. 

Hver þátttakandi kemur með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s.:
 
•     Atferli hestsins
•     Leiðtogahlutverk
•     Fortamning á trippi
•     Undirbúningur fyrir frumtamning
•     Frumtamning
 
Bóklegir tímar:   2
Verklegir tímar:  11
 
Tímar: Fjórir verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn.  Verkleg kennsla verður í Reiðhöllinni  þar sem unnið verður með trippin. Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.
 
Skráning á netfangið [email protected]   – skráningarfrestur er   til 20. október 2012.  Verð kr. 35.000 fyrir hvern nemanda. Sörlafélagar ganga fyrir en námskeiðið er öllum opið.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link